Áður en launin eru uppfærð þarf að tryggja það að "Athugasemdir" neðst á skjánum séu sýnilegar, í þann glugga koma athugasemdir og villur ef einhverjar eru. Athugasemdirnar þarf að lesa lið fyrir lið.
Athuga skal að passa að viðeigandi sía sé á þegar verið er að uppfæra áramótaútborgun upp á stofnun á skattkorti fyrir nýtt ár.
Til að uppfæra launin er farið í Laun/Uppfæra.
Uppfærslan tekur stuttan tíma, hins vegar getur það komið upp að villugluggi/athugasemdagluggi falli á bak við og sé því ósýnilegur. Alt+Tab kallar hann fram.