6. Uppfæra áramótaútborgun
Áður en launin eru uppfærð þarf að tryggja það að "Athugasemdir" neðst á skjánum séu sýnilegar, í þann glugga koma athugasemdir og villur ef einhverjar eru. Athugasemdirnar þarf að lesa lið fyrir lið.
Til að uppfæra launin er farið í Laun/Uppfæra.
Uppfærslan tekur stuttan tíma, hins vegar getur það komið upp að villugluggi/athugasemdagluggi falli á bak við og sé því ósýnilegur. Alt+Tab kallar hann fram.
ATHUGIÐ:
Áður en áramótaútborgun er uppfært er ráðlagt að loka skattkortum starfsmanna sem ekki munu starfa hjá launagreiðanda á næsta ári. Þetta er gert til að ekki stofnist skattkort á þá starfsmenn við uppfærslu áramótaútborgunarinnar.
Fljótleg leið til að gera þetta er að fara í Laun>Vinnslur>Yfirfara launalausa starfsmenn.
Þar er hægt að haka við Loka skattkorti - fyrir þá sem ekki eiga að fá skattkort næsta árs í áramótaútborgun.