Ef launagreiðandi greiðir framlag í starfsmannafélag, hlutfall eða fasta krónutölu á móti starfsmönnum er það sett upp sem stéttarfélag.
Ferli: Stofn - Stéttarfélag
Passa að setja hak í starfsmannafélag.
Svo er farið í Starfsmenn - Lífsj. og Séttarf. og viðeigandi starfsmannafélag sett á starfsmanninn.
Það kemur sjálfgefið hak í starfsmannafélag ef það er skilgreint undir Stofn - Stéttarfélög.
- Gefum því númer, mæli með 4 stafa númeri þannig að það rekist ekki á við númer eiginlegra stéttarfélaga.
- Setjum inn allar upplýsingar um félagið, hver tekur við skilagrein og greiðslum
- Á starfsmannafélagið þurfa að fara 2 launaliðir, annar er frádráttur starfsmanns og hinn er mótframlag.
Þegar búið er að stofna báða þessa launaliði þarf að tengja þá, farið inn, í þessu dæmi er starfsmaður að greiða 1.000,- og launagreiðandi sömu upphæð á móti.
Það þarf að skrá starfsmannafélagið á alla starfsmenn sem eiga að vera í því.