Inn- og útstimplun á vefsíðu

Starfsmenn geta stimplað sig inn og út í Bakverði gegnum vefsíðu. Þannig er með einföldum hætti hægt að koma upp stimplunarstöðvum hvar sem hentar, hvort sem er á PC tölvu eða I-pad.

Tvær stimpilsíður eru mögulegar:

https://bakvordur.advania.is/bakvordur01/stimplun/

https://sky.bakvordur.is/stimplun/index.html

Þegar búið er að Auðkenna stimpilsíðu með kenni fyrirtækis er hún tilbúin til notkunar.

Stimpla sig inn eða út:

  1. í reitinn Auðkenni starfsmanns fer starfsmannanúmer eða kennitala starfsmanns

  2. Smellt á hakreitinn

  • Sé starfsmaður stimplaður út er smellt á Stimpla inn

  • Sé starfsmaður stimplaður inn er smellt á Stimpla út