Eining fyrir þennan eiginleika er Salary4001 Launaupplýsingar
Undir Laun – Greiningar – Fyrirspurn – Launaupplýsingar – 03. Flóra Launaupplýsingar
Fyrirspurn sýnir launaupplýsingar eins og þær eru á starfsmanni í dag.
Fyrirspurnin sýnir laun bæði fyrir starfsmenn í launatöflu og með einstaklingsbundin laun (laun yfirskrifuð).
Fyrirspurn sýnir hvort verið er að varpa launalið yfir í Flóru.
Hægt er að keyra fyrirspurn m.v. deild og/eða launatöflu.
Til þessa að gögn birtist í Flóru
Þarf vörpun launalið í Flóru að vera til staðar. Sjá leiðbeiningar: Möppun Flóra og Launagátt
Einnig þurfa starfsmenn að vera rétt settir upp. Sjá leiðbeiningar: Uppsetning í H3
Uppsetning á fyrirspurn 03. Flóra - Launaupplýsingar
Undir Laun > Launaliðir > haka þarf við Sýnilegt í H3+ og forsn.skj. svo launaliðir séu sýnilegir í fyrirspurninni.
Til að launaliðir birtist í Flóra Launagátt, þarf:
Launaliðir að vera skráðir og í gildi á starfsmanninum í Fastir og hlutfallaðir liðir tímavídd. Í fyrirspurninni birtast þeir þá með haki í Fastir og hlutf.liðir.
Vörpun þarf að vera skráð á launalið eins og var nefnt hér að ofna.
T.d á mynd hér að neðan er vörpun ekki skráð á Dagvinnu og Eftirvinnu. Því birtast þær upplýsingar ekki í Flóru. En þeir birtast í fyrirspurninni vega haksins Sýnilegt í H3+ og. forsn.skj. á launalið. Einnig er ekki hak í Dagvinna, Samgöngustyrkur, Bónus og Eftirvinna og því birtast þeir launaliðir ekki heldur í Flóru Launagátt
ATH. Taxti mánaðarlauna sjást í Flóru Launagátt, óháð því hvort laun séu greidd með mánaðarlaunum eða tímakaupi.