Þeir notendur sem eru með H3 kerfið í H3 hýsingu hjá Advania (HCM) geta nú unnið í teningaskýrslum án þess að skrá sig inn í hýsingarumhverfið.
Helstu kostir þess eru:
Aðgengi notanda að gögnum í teningaskýrslum batnar því þeir þurfa ekki að skrá sig inn í H3 hýsinguna til að nota teningaskýrslur
Bætt upplýsingaöryggi þar sem eingöngu eru vistuð gögn í hýsingu undir aðgangsstýringum H3 kerfisins.
Notendur sem enn hafa teningaskýrslur eða önnur gögn vistuð í H3 hýsingunni eru hvattir til að færa þau gögn út úr hýsingu og inn á drif síns vinnustaðar.
Fjögur skref til að til að tengja teningaskýrslur utan hýsingar
Tryggja að IP talan þín sé skráð á Íslandi
Vista teningaskýrslur á drif á þínum vinnustað
Stofna aðgang í Windows Credentials á vélinni þinni