Windows Credentials er notað til að auðkenna notandann þannig að teningaskýrslur viti hvaða notandi er að opna skýrslu.
Áður en teningaskýrsla er tengd þarf að stofna Windows Credentials á vél hvers teninganotanda. Þetta þarf eingöngu að gera einu sinni.
Stofna Windows Credentials
Vertu á tölvunni þinni (ekki inni í HCM hýsingunni)
Sláðu inn Credential Manager í leitarglugga neðst til vinstri á skjá:
Í glugganum Manage your credentials smelltu á Add a Windows credential:
Í glugganum sem opnast:
Settu slóðina [heiti fyrirtækis].hcm.is (sbr. h3pay.hcm.is á myndinni hér fyrir neðan) í reitinn Internet or network address
Settu notendanafnið þitt inn í HCM hýsinguna (stýrikerfisauðkennið sem byrjar á hcm\) í reitinn User name
Settu lykilorðið þitt inn í HCM hýsinguna í reitinn Password
Smelltu á OK
ATHUGIÐ:
Ef þú slærð inn rangt lykilorð eða notanda koma engar upplýsingar um það
Ef notandi fær nýja tölvu þarf að stofna aftur Windows Credentials aðgang á þeirri vél