Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 2 Next »

Eyðublöð - Staða eyðublaða og Eyðublaðayfirlit

Á verkborðinu má sjá stöðu eyðublaða þeirra starfsmanna sem viðkomandi hefur aðgang að, þ.e. hve stórum hluta er lokið, í vinnslu eða er ekki hafið. Á verkborðinu er aðeins hægt að sjá stöðu fimm eyðublaða í einu. Með því að smella á "Opna lista" er hægt að sjá ef það eru fleiri.

Ef smellt er á eyðublöðin opnast "Eyðublaðayfirlit" sem sýnir stöðu einstaka starfsmanns. Þar er hægt að leita og sía eftir deildum og stöðu. 

Uppsetning

Til þess að stilla hvað á að sjást í stöðu eyðublaða og á eyðublaðayfirlitinu þarf að fara í Stjórnun - Eyðublöð - Tegund eyðublaða og þar er valin sú tegund sem á að sjást og hakað í "Birta á eyðublaðayfirliti".

Til þess að eyðublað fái stöðuna lokið verða starfsmenn og yfirmenn að smella í "Lokið" á eyðublaðinu þá kemur dagsetning í dálkinn við hliðina á hakinu.

Vinna með lista í H3+

Í H3+ (Smartclient) er hægt að vinna með lista á margvíslegan hátt með því að vera staddur í lista og smella á:

Ctrl + R - Hægt að færa atriði úr listanum upp og flokka listann eftir þeim atriðum. Smellið með músinni einhversstaðar í listann og smellið á Ctrl+R á lyklaborðinu. Dragið síðan það atriði sem flokka á eftir upp fyrir dálkaheitin.

Ctrl + T - Hægt að breyta gildum sem eru í hvítum dálkum beint í listanum. Smellið í viðkomandi reit og með því að fara með bendilinn í neðra hægra hornið í reitnum er hægt að afrita gildið niður. Einnig er hægt að velja reit með gildi sem þú vilt afrita niður, halda Ctrl inni og velja þá reiti sem eiga að fá gildið og smella síðan á Ctrl + D.

Reikna í töflum: hægt er að framkvæma ýmsa útreikninga í kerfinu með því að vera með bendilinn í réttum dálki og hægri smella. Velja svo Greiningar.

Ef dálkurinn er textareitur er mögulegt að telja:

  • Fjölda 
  • Einkvæm gildi

En ef reiturinn er töludálkur er hægt að reikna:

  • Samtölu 
  • Fjölda 
  • Einkvæm gildi
  • Meðaltal
  • Hæsta gildi
  • Lægsta gildi

Til að hreinsa niðurstöðuna er hægri smellt aftur, farið í Greiningar og valið að hreinsa.


  • No labels