Áður en launamiðar eru prentaðir þarf að stemma launin af við bókhald og ganga úr skugga um að uppsetning launamiða sé rétt. Við afstemmingu launa og bókhalds er þægilegast að nota fyrirtækjalista fyrir allt árið.
Til að stemma launamiðann af við launakerfið eru notaðir tveir listar. Fyrirtækjalisti fyrir allt árið og samtalsblað launamiða. Fyrirtækjalistinn er undir Úttak / Skýrslur / Fyrirtækjalisti, Samtalsblað launamiða er í Úttak- Launamiðar - Prenta,
í "Birting launamiða" er haft "Samtölur eingöngu".
Ef gögnin eru stór getur þessi aðgerð tekið nokkrar mínútur að keyra..
Mikilvægt er að skoða afstemmingu neðst á samtalsblaði, ef hún er 0 þá eru allir launaliðir tengdir. Það segir þó ekki til um hvort einhverjir launaliðir séu vitlaust tengdir en það verður hver að vita fyrir sig.
Ef bókhald, fyrirtækjalisti og samtalsblað launamiða stemma saman eru launamiðar sendir og gerð skil til Ríkisskattstjóra.
Fyrra skref
Næsta skref
Prenta launamiða