Innskráning í farsíma
Til að skrá sig inn í Bakvörð í farsíma er farið í vafra á farsímanum (t.d. í Crome) á þá Bakvarðarslóð sem fyrirtæki starfsmannsins er á:
https://bakvordur.advania.is/ eða
- og farið í gegnum innskráningu með einni af þeim innskráningarleiðum sem eru í boði.
Stillt á símavænt viðmót
Til að stilla á símavænt viðmót er farið í Stillingar efst uppi í hægra horni (smellt á eigin mynd ef hún er þar) - og valið: Nota nýtt viðmót
Inn- og útstimplun í síma
Smelltu á Stimpla inn til að stimpla þig inn
Smelltu á Stimpla út til að stimpla þig út - eða smelltu á grænu örvarnar ef þú vilt stimpla þig á milli verka
Vinna með eigin skráningar í síma
Ef þú vilt vinna með tímaskráningu smellir þú á skráninguna undir Síðustu tímaskráningar - og gerir breytingar sem þú vilt gera s.s. að bæta við athugasemd.
Við vistun skráningarinnar getur þú gert enn frekari breytingar s.s. að bæta skráningum á daginn með því að velja Bæta við á dag:
Setja Bakvarðarsíðuna á heimaskjá farsíma
Til að þú þurfir ekki að skrá vefstimplunarslóðina inn í vafra í hvert sinn sem þú stimplar þig inn er hægt að vista Bakvarðartáknið og slóðina á heimaskjá símans. Til að gera þetta er ferðu inn á bakvarðarslóðina á símanum og velur:
I-Phone
Þá birtist Bakvarðartáknið á skjánum og nóg að smella á það til að opna Bakvörð á farsímanum:
Android
Þá birtist Bakvarðartáknið á skjánum og nóg að smella á það til að opna Bakvörð á farsímanum:
Athugið að til að geta skráð sig inn í Bakvörð í farsíma þarf starfsmaður að vera notandi að Bakverði og mega sem notandi vinna með eigin skráningar.