Rafræn skil á launaseðil í heimabanka starfsmanna er það sem flestir launagreiðendur og launþegar kjósa.
Það sem þarf að gera áður en seðlarnir eru sendir rafrænt í fyrsta skipti má sjá hér.
Ef seðillinn er prentaður á pappír prentast hann út með allri uppsetningu og því þarf ekki að nota forprentaða seðla.
Notendur geta haft nokkur áhrif á það hvernig seðillinn lítur út, í Stofn / Stillir / HLaun-Launaseðill eru þau atriði sem hægt er að breyta.
Til að prenta seðilinn er farið í Úttak / Launaseðlar / Prenta. Ef einhver starfsmannaskjámynd er opin kemur kennitala þess aðila inn í prentgluggann, annars koma frá til skilyrði á Launamanninn tómar. Ef velja á að prenta alla seðla eða skoða á skjá óháð skilaaðgerðinni er valið "Allir" í Tegund launaseðils. Farið er á milli launaseðla með PageUp og PageDown eða smellt á örvatakkana efst í myndinni.