Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 9 Next »

Atvikanúmer

Ferli

Lýsing á virkni

Kerfishluti

Stillingar / leiðbeiningar

STRY0029197

Laun - Launatöflur

Nú er ekki hægt lengur að eyða flokki í launatöflu ef einhver starfsmaður er skráður á viðkomandi flokk.

LAUN

STRY0030624

Laun fullur aðgangur

Þeir notendur sem eru með Laun (F) geta nú séð þær athugasemdir, ef einhverkjar eru, við tímavíddarkeyrsluna sem keyrir á hverjum sólahring. Athugasemdirnar birtast í rauðum glugga neðst í hægra horni H3+, sbr glugginn hér til hliðar.

LAUN

STRY0033289

Laun - Laun - Afturvirkar launaleiðréttingar

Gerðar hafa verið aðlaganir á aðgerðinni "Afturvirkar launaleiðréttingar". Nú er hægt að framkvæma leiðréttingar óháð tímarvíddarskráningum starfsmanna, sjá nánari upplýsingar hér til hliðar eða hér.

LAUN

Ef búið er að virkja tímavídd og framkvæma á afturvirkar launaleiðréttingar þá vinnur vinnslan nú samkvæmt skráningum í tímavídd. Skoðaðar eru tímabil skráninga á tímavídd á móti upphæðum í launatöflu á viðkomandi tímabili og hvað starfsmaðurinn fékk greitt. 

Bætt var við aðgerð í vinnsluna frá og með uppfærslu 8895 (janúar 2022) sem býður upp á það að leiðrétta laun óháð tímavíddarskráningum á starfsmönnum. Ef hakað er í gula svæðið hér til hliðar þá miðast leiðréttingin við skráðar upplýsingar á starfsmanni sem eru í gildi á þeim degi sem vinnslan er keyrð. 

STRY0031377

Laun - Skrá tíma og laun

Nú er boðið upp á tvær reikniaðferðir, sjá nánari upplýsingar hér til hliðar eða hér.

LAUN

Aðferð 1

Notar fjölda virkra daga deilt með meðaltalsmánuði (21,67) til að reikna hlutfall eininga þegar launalið er skipt upp.

Þetta er aðferð sem hefur verið notuð í H3 hingað til.

Dæmi:

Starfsmaður á 100% launum fær launahækkun frá og með 15.9.2021.

Tímabil 1: 1.9-14.9.2021 samtals 10 virkir dagar sem gerir 10/21,67= 0,461467

Tímabil 2: 15.9-30.9.2021 samtals 12 virkir dagar sem gerir 12/21,67=0,553761

Samtals gerir þetta 1,015228 einingu.

Hjá þeim notendum sem eru að nota tímavídd þá framkvæmir kerfið skiptinguna sjálfkrafa ef það er merkt að viðkomandi launaliður eigi að hlutfallast eftir dagsetningum í tímavídd.

Þeir notendur sem eru ekki búnir að virkja tímavídd halda áfram að handskrá þessar breytingar líkt og þeir hafa áður gert.

Aðferð 2

Notar fjölda daga á tímabili deilt með fjölda daga í mánuðinum.

Þetta er ný aðferð!

Dæmi:

Starfsmaður á 100% launum fær launahækkun frá og með 15.9.2021.

Tímabil 1: 1.9-14.9.2021 samtals 14 dagar sem gerir 14/30= 0,466667

Tímabil 2: 15.9-30.9.2021 samtals 16 dagar sem gerir 16/30=0,533333

Samtals gerir þetta 1 einingu.

Notendur sem eru með tímavídd og velja að nota þessa aðferð fara í Laun - Stofn - Stillir - HLaun - Nota fjölda virkra daga deilt með meðaltalsmánuði (21,67) til að reikna hlutfall eininga þegar launalið er skipt upp samkvæmt tímavídd og velja “Nei”.

Þessari nýju stillingu verður dreift með gildinu “Já” og munu notendur ekki finna fyrir neinum breytingum nema þeir viðskiptavinir sem eru komnir með tímavídd þeir þurfa að vera meðvitaðir um þegar það er uppskipting skv. skráningu í tímavídd á tímabili að laga einingarnar í takt við hvað viðkomandi á að fá greitt í laun sbr ofangreint dæmi í aðferð 1.

 

STRY0022653

STRY0034131

STRY003358

Laun - Starfsmenn - Grunnlaun - Persónuálag

Nú er hægt að skrá Persónuálag á starfsmenn, sjá nánari leiðbeiningar hér til hliðar eða hér.

LAUN

Hægt er að setja inn Starfsþróunar- og Menntunarálag sem samanlagt gerir Persónuálag starfsmannsins.

Ferli: Starfsmenn - Grunnlaun

Athugið að þessi virkni er eingöngu aðgengileg með Tímavídd og hefur bein áhrif á þrep starfsmannsins í launatöflunni.

Með þessu er hægt að bæta við á auðveldan hátt þegar starfsmaður bætir við sig t.d. menntunarálagi sem á að hafa áhrif til hækkunar launa.

 

Til að virkja Persónuálagið þarf að fara í Stofn-Stillir-HLaun-Kveikja á persónuálagi og velja “Já”.

 

STRY0029968

Rafrænar undirskriftir, Signet

Nú sjást ekki lengur óvirk tölvupóstsniðmát í Signet-glugga

RAFRÆNAR UNDIRSKRIFTIR

STRY0035003

Stjórnun - Verkferlar

Nú þarf deild ekki lengur að vera tengd sviði svo að starfsmenn sjáist í verkferlum

STJÓRNUN

STRY0035108

Stjórnun - Verkferlar

Lagfæring á því að ekki var hægt að virkja verkferli t.d. ef starfsmaður sem virkja átti verkefli fyrir var ekki skráður í sömu deild og stjórnandi sem átti að framkvæma þau

STJÓRNUN

  • No labels