Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

  1. Opnaðu listann Stjórnun > Mannauður eða Laun > Launamenn
  2. Veldu viðkomandi starfsmann úr starfsmannalista.
  3. Smelltu á Taktikal hnappinn - þá opnast glugginn Senda gögn í rafræna undirskrift með upplýsingum um viðkomandi starfsmann.
  4. Dragðu samninginn yfir gluggann eða sæktu skjalið með því að smella á möppuhnappinn í reitnum Skrá. Þegar smellt er á möppunahnappinn til að velja skjal birtast eingöngu þær skrár sem eru á pdf formi og hægt að sækja skjal beint úr skjalaskáp H3 eða af drifi.
  5. Því næst er tölvupóstsniðmát valið úr fellilista og þegar það hefur verið valið kemur sjálfkrafa sú tegund viðhengis sem hefur verið hengd á tölvupóstsniðmátið í reitinn Tegund viðhengis. ATH. Til þess að ákvarða hvaða tegundir skjala birtist þarf að haka við tegundirnar í H3 Windows clientinum, í Mannauður > Forsniðin skjöl > Tegund skjals. 

  6. Skrá Heiti skjals
  7. Yfirfara hvort nafn starfsmanns, kennitala og netfang sé rétt. Netfang er sótt í reitinn vinnunetfang í H3. Ef einstaklingur er einnig með skráð persónulegt netfang er hægt að velja það úr fellilista, auk þess sem hægt er að skrifa netfang í reitinn ef þörf er á.
  8. Tímarammi undirritunar sýnir tímabilið sem skjalið á að vera aðgenglegt í Signet. Reiturinn Dags. frá birtir sjálfkrafa daginn í dag og dags. til og með birtir sjálfgefið dagsetningu sem er fimm dögum síðar. Dagsetningunum má breyta að vild en vegna virkni á Taktikal yfirliti verða dagsetningar þó alltaf að vera fylltar út. Hægt er stilla hversu oft og í hversu langan tíma áminningar um að skjal bíði undirritunar eru sendar.  Við mælum með að hafa samband við H3 ráðgjafa varðandi aðstoð við það.
  9. Veldu einn eða fleiri sem undirrita eiga skjalið fyrir hönd fyrirtækisins. Til að geta undirritað verður viðkomandi að hafa rafræn skilríki frá Auðkenni, t.d. í símanum sínum.
  10. Hægt er að skrá inn texta og haka við að hann eigi að birtast fyrir ofan undirskrift stjórnanda, sbr. Undirritað f. h. xxxx
  11. Því næst er smellt á Senda og loka eða Senda og velja annað skjal, ef senda á fleiri en eitt skjal á sama aðila, og þá er skjalið komið í undirritunarferli.


Info

Kröfur frá Taktikal eru þannig að það athugar hvort viðkomandi sé með rafræn skilríki hjá Auðkenni og hvort þau séu skráð á þessu símanúmeri.

Ef viðkomandi er með appið, þá skiptir símanúmerið ekki máli, en ef hann er einungis með skilríki á SIM þá þarf það að vera númerið sem við fáum.

  • Undirritandi þarf aldrei að slá inn kennitölu og eða símanúmer til að undirrita.

Ekki á að vera hægt að senda til undirritunar beiðni á fólk sem getur ekki skrifað undir, það er stoppað strax.