Starfsmannavelta er einn af lykilmælikvörðum sem notaðir eru til að vakta gengi mannauðsferla sem og væntan kostnað vegna mönnunar og þjálfunar hjá fyrirtækjum.
Í H3 er starfsmannavelta sýnileg í mannauðsteningi; hún er sýnileg þrátt fyrir að vera ekki með H3 Mannauð.
Hér er hægt að hlaða niður skýrslu til að sjá starfsmannaveltu í mannauðsteningi.
Í skýrslunni eru:
Talningar á starfsmönnum sem byrja, hætta og fara í leyfi á tímabili.
Meðalfjöldi starfsmanna í starfi á tímabili
Starfsmannavelta í %
Í skýrslunni er m.a. notast við eftirfarandi mælikvarða á starfsmannaveltu:
Starfsmannavelta = (fjöldi hættra starfsmanna / meðalfjöldi starfsmanna) á tímabili
Hægt er að setja upp aðra mælikvarða starfsmannaveltu í mannauðsteningnum.
ATHUGIÐ:
Áður en starfsmannaveltuskýrslan er tengd er ráðlegt að endurbyggja innri starfsferla með aðgerðinni: Kerfisumsjón > Keyrslur> Endurbyggja innri starfsferla
Sterklega er mælt með því að virkja tímavídd áður en upplýsingar um starfsmannaveltu eru teknar út úr teningnum.