Útgefnar Excel-skýrslur
Um teninga
Skjölin á þessari síðu eru skýrslur sem tengjast engum raunverulegum gögnum. Þær eru staðlaðar svo þær henti flestum. Gagnauppsetning í H3 í þínu fyrirtæki getur þó verið frábrugðin þeirri uppsetningu sem gert er ráð fyrir við gerð skýrslna og er mikilvægt að sannreyna allar skýrslur eftir tengingu.
Hver tegund teninga er sér eining og er ekki hægt að vensla töflur úr mismunandi tegundum teninga saman þó það sé hægt að vera með tvo teninga í sama Excel skjali.
Hægt er að aðgangsstýra aðgang að öllum upplýsingum (að undanteknum aðgangsteningi) m.t.t. deilda og frá hvaða útborgun. Með þessu móti er hægt að gefa t.d. deildarstjórum aðgang að sínum/inni deild/um og frá þeirri útborgun sem starfsmaður hóf störf.
Áður en hægt er að tengja skýrslur þarf að
tryggja að IP talan sé íslensk (sumar VPN tengingar skila erlendri IP tölu og getur okkar tæknifólk aðstoðað ef þörf er á
lesa og fara eftir leiðbeiningum H3 teningaskýrslur (OLAP) og aðgangsmál og stilla hlutverk og aðgangsstýringar séu stilltar í H3 kerfinu fyrir notanda
Stofna stýrikerfisauðkenni (Windows Credentials) á vél notanda svo tölvan geti einkennt sig við netþjóna Advania
Samantekt á teningum
Í töflunni hér fyrir neðan er stutt samantekt á teningum en hún er alls ekki tæmandi
Tegund | Hvað er að finna í teningum | Aðrar upplýsingar | |
|---|---|---|---|
| 1 | Aðgangsteningur | Upplýsingar um aðgang notenda í H3 kerfinu. Listar sem sýna aðgangsstýringar, hlutverk notenda og einingar í hlutverkum. | Fyrir: Gæðastjóra Mannauðsstjóra Gæðaúttektir, tryggja að hætt starfsfólk sé ekki með aðgang o.fl. |
| 2 | Áætlunarteningur | Áætlun, rauntölur og frávik um laun og stöðugildi o.fl. | Fyrir: Forstjóra, yfirstjórn, mannauðsstjóra, stjórnendur, launasérfræðinga Forsenda er að launaátlunarkerfi sé nýtt í H3. Ráðgjafar veita nánari upplýsingar um uppsetningu |
| 3 | Jafnlaunavottun | Launabreytingar, jafnlaunaskýrsla, PWC launagreining, viðmiðagreining o.fl. | Fyrir: Mannauðsstjóra, launasérfræðinga |
| 4 | Launateningur | Laun, stöðugildi, fyrirtækjalisti, gjaldkeralisti, greining yfirvinnu, veikindum og öðrum liðum sem verða laun eins og stéttarfélög, gögn um launatöflur, lífeyrissjóði, kostnaðargreiningu, afstemmingar, persónuafsláttur o.fl. | Fyrir: Forstjóra, yfirstjórn, millistjórnendur, launasérfræðinga og bókara (Launaupplýsingar án launamanna) Upptalning hér til vinstri er aðeins hluti af greiningum. Hægt er að kalla fram flestar upplýsingar sem varða launahluta H3. Hægt er að gefa aðgang án persónulega greinanlegra upplýsinga (Launaupplýsingar án launamanna) |
| 5 | Launateningur án launþega | Engar persónugreinanlegar upplýsingar. | Fyrir: Starfsfólk í bókhaldi sem þarf að vera með upplýsingar um laun, lífeyrissjóði, stéttarfélög, kostnað, bókhaldslykla o.fl. |
| 6 | Mannauðsteningur | Starfsmannavelta, þjóðerni, menntun, fræðsla, skírteini, þekking, starfsaldur | Fyrir: Mannauðsstjóra, fræðslustjóra Hægt er að búa til vöntunarlista, skírteini sem komin eru á endurnýjun o.fl. Starfsmannavelta, þjóðerni og aðrar upplýsingar úr “Launamenn” eru einnig aðgengileg þeim skipulagseiningum sem eru ekki með H3 mannauður |
| 7 | Réttindateningur | Sýnir skuldbindingu á orlofs- og desemberuppbót og orlofi | Fyrir: Forstjóra, fjármálastjóra Forsenda fyrir því að gögn séu uppfærð eru að réttindaútborgun hafi verið gerð. Ráðgjafar veita nánari upplýsingar |
Teningar til að hala niður
Aðgangsteningar
Áætlunarteningar
Jafnlaunateningar
Launateningar
Launateningar án launþega
Mannauðsteningar
Réttindateningar
Eldri launateningar
Eldri Réttindateningar