Teningavinnslur

Teningavinnslur

Greinarmunur er á uppfærslu gagna í gagnagrunn annars vegar og uppfærslu gagna inn í teninga hins vegar.

Uppfærsla gagna í teningum gerist annaðhvort sjálfkrafa við opnun skjals með stillingu í gagnatengingu í Excel eða með handvirkri skipun í Excel.

Gögn sem teningar nýta uppfærast að öllu jöfnu einu sinni á sólarhring í gagnagrunn sem teningar sækja gögn í. Hægt er að láta H3 sækja gögn í gagnagrunn handvirkt í H3.

Uppfærsla gagna í teningum

Excel sækir upplýsingar úr OLAP gagnagrunni sem fær sínar upplýsingar úr H3. Við mælum með að gögn uppfæri sig sjálfkra í teningum. Þetta er stillt í gagnatengingu/m sem er/u í notkun í hverri skýrslu. Sé skýrslu deilt með öðrum munu öll gögn sem voru sýnileg í skýrslunni þegar henni var lokað vera sýnileg óháð réttindum.

Þó gagnatenging sé stillt að gögn uppfærist sjálfkrafa við opnun verða öll gögn sem voru sýnileg við lokun skjals sýnileg óháð réttindum á meðan gögn endurfrískast.

Við endurfrískun gagna uppfærast aðgangsstýringar eins og þær eru skilgreindar í H3 og aðeins þau gögn sem notandi hefur aðgang að eru sýnileg.

Séu fleiri en ein tenging í skjalinu er hægt að athuga í Connection Properties - Used in hvort tenging sé í notkun í skjalinu.

Sjálfvirk uppfærsla gagna við opnun skjals

Haka þarf í báða reiti. Hægt er að nota flýtihnappa: Alt+A, O

image-20260115-103243.png

Handvirk uppfærsla

Sé tryggt að notendur með minni réttindi hafi ekki aðgang, mikið sé unnið í greiningum, skýrslur séu mjög stórar og ný gögn koma sjaldan frá H3 má færa rök fyrir því að taka hakið úr sjálfvirkri endurfrískun gagna (e. Refresh data when openin file). Þá þarf þó að vera hakað við Refresh this conncection on Refresh All.

Til að endurnýja er hægt að smella á Refresh All (til að tryggja að allar veltitöflur og öll myndrit endurfrískist. Hægt er að nota Alt+Ctrl+F5 (FN+F5 á sumum lyklaborðum)

image-20260115-112259.png

 

Uppfærsla gagna í gagnagrunn

 

Uppfærsla gagna í gagnagrunni

Að öllu jöfnu uppfærast gögn í gagnagrunn einu sinni á sólarhring með sjálfvirkri keyrslu og er algengt að sú vinnsla fari fram að nóttu til.

Sé þörf á að fá uppfærð gögn samdægurs í teningum er hægt að setja uppfærslu handvirkt af stað. Algengt er að slík vinnsla taki milli 60-90 mínútur til að uppfæra gögn og 5-20 mínútur að uppfæra hlutverk og aðgangsstýringar.

Notandi þarf að vera með kerfisvinnsluaðgang (hlutverkið Kerfvh3+ og/eða Kerfisvinnsla H3+)

Ástæður til að uppfæra handvirkt

  1. Þörf er á að sýna breytingar sem hafa verið gerðar í H3 samdægurs í teningaskýrslu samdægurs.

  2. Notandinn fær villumeldingar við að opna tengda teningaskýrslu sem áður hefur verið í lagi.

  3. Nýr eða breyttur notandi þarf að fá aðgang að Olap skýrslum samdægurs.

Handvirk uppfærsla

Fyrirtæki sem eru með samstæðusýn sjá tvo möguleika. Sé möguleikinn samstæðuteningingar í boði skal velja hann til þess að allir undirliggjandi grunnar (fyrirtæki) uppfæri sig. Sjá nánar um Stillingar eftir að gagnavöruhús er uppsett.

Kerfisumsjón - Vinnslur (smella á örina) - OLAP samstæðuteningar eða OLAP fyrirtækjateningar - Uppfæra handvirkt.

image-20260115-122258.png

 

Ef einungis réttindi notanda til þess að sjá t.d. nýja deild hafa breyst í H3 og ætlunin er að notandi eigi að geta séð teninga strax er nóg að smella á Uppfæra hlutverk og aðgangsstýringar. Sé notandi hins vegar nýr þarf að velja uppfæra handvirkt.

Fylgjast með handvirkri uppfærslu

Hægt er að fylgjast með framvindu uppfærslu gagna. Kerfisumsjón - Vinnslur (smella á tannhjólið) - Sía út BIAnalytics - Sía út Í vinnslu

image-20260115-141529.png

Síðuna sem kemur upp þarf að endurfríska handvirkt til þess að sjá stöðu uppfærslu. Þegar hún er tóm hafa gögin uppfært sig

image-20260115-142227.png