Fjarveruóskir - meðhöndlun yfirmanna
í Bakverði geta starfsmenn lagt fram ósk um fjarveru s.s. orlof - og skráðir yfirmenn haft yfirsýn um fjarveruóskir og samþykkt þær eða hafnað. Hægt er að láta pósta sendast til starfsmanns og yfirmanna þegar fjarveruóskir eru skráðar og meðhöndlaðar.
ATHUGIÐ: Skráður yfirmaður deildar eða starfsmanns fær tilkynningu í pósti um fjarveruósk - starfsmaður fær upplýsingar um það þegar hann skráir fjarveruósk.
Til að vinna með fjarveruóskir fer yfirmaður í Fólkið mitt>Fjarvera. Þá sést yfirlit fjarveru sem yfirmaður getur stillt til til að fá sem besta yfirsýn:
Litir á fjarveruyfirliti:
Gulur: ósamþykktar fjarveruóskir
Blár: samþykktar fjarveruóskir
Rauður: fjarveruósk sem hefur verið hafnað
Appelsínugulur: tímaskráningar sem EKKI hafa farið í gegnum samþykkt fjarveruóska
ATHUGIÐ:
Hægt er að samþykkja allar fjarveruóskir valins/valinna starfsmanns í einu með því að haka við starfsmann fjarveruyfirlitinu og smella á Samþykkja valdar.
Hægt er að ná fjarveruóskum úr fjarveruyfirliti yfir í excel skjal með því að smella á Opna í Excel hnappinn í fjarveruyfirlitinu. í Excelskjalinu sjást óskirnar á einum flipa fyrir hvern mánuð.
Yfirmaður sér annað hvort fjarveruóskir allra starfsmanna eða eingöngu þeirra starfsmanna sem hann má sjá - eftir þeim stillingum sem eru á fyrirtækinu í Bakverði.
Vinna með fjarveruóskir
Til að sjá allar ómeðhöndlaðar fjarveruóskir er smellt á Óafgreiddar fjarveruóskir. Þar er hægt að velja eina eða fleiri óskir og samþykkja, samþykkja með breytingum eða hafna.
Sé fjarveruósk hafnað þarf að skrá skýringu sem starfsmaður mun sjá.
Hægt er að breyta um ástæðu tengda fjarveruósk. Eigi starfsmaður t.d. ekki orlofstíma í samræmi við fjarveruóskir getur stjórnandi breytt ástæðu á fjarverósk úr: OR:Orlof - yfir í LL:Launalaust leyfi. Upplýsingar um stöðu tímabanka starfsmanna s.s. vegna orlofs sjást með því að smella á Sjá stöðu tímabanka í yfirlitsmynd fjarveruóska.
ATHUGIÐ:
Samþykktar fjarveruóskir dragast frá tímabanka starfsmanna - fjarveruóskir sem er hafnað dragast ekki frá tímabanka starfsmanna.
https://advaniaconfluence.atlassian.net/wiki/spaces/BAK/pages/2540699649