Áætlanir og Einstaklingsbundin laun

Búið er að bæta við nýjum áætlanadálki: Yfirvinnutaxti yfirskrifaður

image-20240209-112119.png

Áætlanadálkur myndar þrjá dálka í skráningu áætlana (einingar, einingarverð og samtals). Þessir dálkar raðast aftast í listanum. 

Uppfæra þarf áætlanadálka til að fá þá til að koma inn í Skráning launaáætlana.

→ Ferlið til að uppfæra áætlanardálka er: Áætlanir- Áætlanadálkar - Uppfæra áætlanadálka.

image-20240209-112743.png

Uppsetning

Undir Áætlannir - Stilla dálka og reikning - stofna Yifvinnutaxti yfirskrifaður undir Áætlanadálkar.

Einnig undir Stilla dálka og reikning - haka við viðeigandi dálka undir Stillir - Yfirvinnutaxti yfirskrifaður

Undir Áætlanir - Tenging við launalerfi- Tegundir launaliða - tengja Yfirvinnutaxti yfirskrifaður (indvovrtim) við viðeigandi launalið.

 

Gögn sótt í áætlun

Þegar gögn eru sótt inn í áætlanir, þá er mikilvægt að muna að grunngögnin (til dæmis frá árinu þar á undan) mynda fjölda eininga en einingarverð myndast frá nýja tímabilinu. 

Ef tímavídd er ekki með skráð yfirskrifuð laun fyrir viðkomandi áætlanamánuð þá merkist færslan ekki með haki í einstaklingsbundin laun. Sem dæmi, ef starfsmaður er með framtíðar tímavídd sem tekur gildi í september 2024 þar sem hann fer á föst laun, þá eru mánuðir fram að því með launaupplýsingum frá launatöflu. 

  • Einingarverð fyrir mánaðarlaun er sett inn í fyrsta áætlanadálkinn Mánaðarlaun samkvæmt tímavídd starfsmanns. 

  • Einingarverð fyrir einstaklingsbundin yfirvinnutaxta kemur samkvæmt tímavídd.  

  • Einingar fyrir yfirvinnu yfirskrifaða kemur inn samkvæmt skráðum einingum á þeim launalið sem er tilgreindur undir Laun-Stofn-Stillir-Laun Einstaklingsb.

  • Athugið einnig að sjálfgefið eru eingöngu sóttar einingar fyrir skráða yfirvinnutíma (ekki reiknaða).

    • Sem dæmi: ef yfirvinnan kemur úr hlutfölluðum liðum.

Endurrreikningur

Við allar breytingar sem eru gerðar í skráningu þá er viðkomandi lína endurreiknuð. Þannig að til dæmis ef einingarverði fyrir Mánaðarlaun er breytt frá 1 yfir í 0,5 þá er upphæðin fyrir launatengd gjöld endurreiknuð. 

Ef aðgerðin Endurreikna er valin þá eru allar línur í áætlun endurreiknaðar.