Uppsetning í H3

Ef þitt fyrirtæki vill nýta sér Flóru fyrir aðgang starfsfólks að mannauðsupplýsingum bendum við ykkur á að hafa samband með tölvupósti á netfangið h3@advania.is.

Þær upplýsingar sem þurfa að vera til staðar í H3 eru:

Á launamannaspjaldinu þarf að vera skráð netfang í reitnum Vinnunetfang.

Á starfsmannaspjaldinu þarf að vera upplýsingar skráðar í:

  • Fyrst ráðinn

  • Starfsheiti

  • Deild

  • Staða starfs: Í starfi eða Í leyfi

  • Staða: Virkur

 

Hægt er að skrá orlofsrétt starfsmanns undir Laun – Starfsmenn – Grunnlaun inn í H3.

Skilgreina þarf forsendur í Launatöflur – Orlofsflokkahækkanir, fjöldi orlofsdaga þá sækir kerfið orlofsprósentu í DV og ÖN, hægt er þó að yfirskrifa upplýsingar í þessum reitum.

Formúlan sem er notuð er skv. sa.is - innvinnsla orlofslauna