Uppfæra samkvæmt tímavídd í áætlunum
Eining: plan2001 - Uppfæra samkvæmt tímavídd
Ásamt einingu þarf notandinn að hafa aðgang að starfsmannalista undir laun, þar sem verið er að sækja gögn í þann lista.
Ef aðgerðin Uppfæra samkvæmt tímavídd er notuð þá uppfærir aðgerðin gildin hér að neðan ef þau hafa breyst á þeim tíma sem er verið að vinna með í áætlun eftir að gögn hafa verið sótt í áætlun.
Launatafla
Launaflokkur
Þrep
Einingarverð
Deilitala/Orlofstímar
Orlofsprósenta DV
Orlofsprósenta ÖN
Reiknað orlof
Hægt er að sía aðgerðina eftir
Launafólki
Deildum
Verkum
Ásamt því er einnig hægt að uppfæra einingarverð útfrá launatöflu.