Persónuvernd og umsækjendur
Umsækjendur geta eingöngu skoðað umsóknargögn sín, eytt umsóknum sínum og breytt samþykki sínu varðandi meðhöndlun umsókna ef þeir eru notendur á ráðningavef fyrirtækis/stofnunar.
Skoða upplýsingar um sig sem umsækjanda
- Sem umsækjandi farðu á ráðningavef og veldu Mínar síður efst í hægra horni vefsins
- Skráðu þig inn sem notanda
- Veldu Staða umsókna vinstra megin á ráðningasíðunni - þá opnast glugginn Staða umsókna
- Í glugganum getur þú:
- Skoðað umsóknir sem þú sendir inn á skjá eða vistað sem pdf skjal
- Breytt samþykki þínu um meðhöndlun hverrar umsóknar
- Eytt einni eða öllum umsóknum - og lokað aðgangi þínum, leyfi fyrirtækið/stofnunin slíkt.
Þegar umsækjandi eyðir umsókn sinni berst póstur í póstfang ráðningakerfisins.
Skoða persónuvernd á umsóknum
Upplýsingar um meðhöndlun persónuupplýsinga birtast á umsóknum með eftirfarandi hætti:
- Efst í hægra horni umsóknar birtist rauður lás ef umsækjandi samþykkti ekki alla skilmála persónuverndarsamþykktar.
- Á flipanum Samþykki sjást samþykktir umsækjenda fyrir umsóknina:
1.) Hvaða skilmála umsækjandi samþykkti eða synjaði og hvenær
2.) Hvernig skilmálinn hljóðaði
Athugið að umsóknir sem voru til staðar áður en persónuvernd var sett af stað í ráðningakerfi fá rauða lásinn þar sem þær hafa ekki fengið samþykki umsækjenda.