7. Skráning dagpeninga

Smellt er á biðfærslur til að skrá dagpeninga:

Skjámyndinni er hægt að raða upp á ýmsa vegu og draga dálka upp fyrir rammann sem skoða á sérstaklega hverju sinni.  Þannig er hægt að sjá í einni svipan t.d. alla þá sem eru að fara á sama stað, eru með sömu dagsetningar eða þá sem eiga ógreidda dagpeninga.

Oft er hafður einn bunki fyrir hvern mánuð eða hvert ár, en stundum þarf að skipta honum upp, til dæmis þegar hluti starfsmanna fær dagpeningana greidda áður en ferðin er farin en aðrir fá greitt í næstu útborgun.


Ath. Þau gildi sem eru ekki valin úr fellilista í stillinum þarf að vera að vera búið að forskrá í Dagpeningar -> Stofn.

Til að flýta fyrir skráningu er hægt að skrá þau gildi sem eiga að vera sjálfgefin í skráningunni í Laun -> Stofn -> StillirÞað eru gildin staður, komu- og brottfararnúmer (flug / ferð), farartæki og stöðuheiti. Til þess þarf notandi að hafa aðgang að H3 Laun. 

Hér má sjá dæmi um hvernig gildi eru forskráð í stilli og hvernig þau birtast þegar skrá á nýja færslu:

 




Þegar búið er að skrá dagpeningafærslurnar er farið í Aðgerðir (niðri hægra megin) og valið að Reikna dagpeninga.

Nánari leiðbeiningar má finna í kaflanum Unnið með dagpeningafærslur