H3 tímavídd
Vinsamlegast kynnið ykkur vel virkni og notkun á tímavídd áður en hún er virkjuð.
Ef eitthvað er óljóst hafið samband við ráðgjafa á netfangið h3@advania.is
H3 Tímavídd
Tímavíddin í H3 gerir notendum kleift að dagsetja breytingar á grunnupplýsingum um starfsmenn, t.d. breytingar á stöðu starfs, starfsheiti eða deild. Tímavíddin gerir breytingasöguna í kerfinu mun aðgengilegri fyrir notendur en hún var áður og gerir þeim kleift að skrá breytingar fram í tímann, auk þess sem hún gerir samanburð gagna á milli tímabila auðveldari.
Starfsmannamyndin (Laun > Starfsmenn og Stjórnun > Starfsmenn), þar sem haldið er utan um grunnupplýsingar hvers starfsmanns, hefur nú verið tengd við tímavíddina:
Helstu kostir tímavíddar
Tengir breytingar við ákveðnar dagsetningar
Gerir kleift að skrá breytingar fram í tímann
Gerir breytingasöguna aðgengilegri
Gerir samanburð gagna auðveldari
Bætir skýrslugjöf
Tryggir rekjanleika
Almennt um H3 tímavídd
Hægt er að skrá breytingar í opinni tímavídd starfsmanns.
Ekki er hægt að skrá breytingarfærslu með dagsetningu sem er fyrir frumstillingu tímavíddar.
Ekki er hægt að eyða út færslu sem er frumstilling tímavíddar.
Ef sett er inn breytingarfærsla með núverandi dagsetningu eða dagsetningu sem er liðin, þá skila þær breytingar sér bæði í starfsmannamyndina fyrir ofan tímavíddina og í borðann efst (e. header), þar sem við á.
Hægt er að skrá breytingar fram í tímann.
Ef sett er dagsetning fram í tímann þá kemur breytingin inn í starfsmannamyndina og borðann efst þegar sá dagur er kominn.
Þegar tímavídd hefur verið virkjuð þá er EKKI hægt að bakka þeirri aðgerð.