Persónuvernd
Í H3 eru tekin fjögur megin skref til þess að aðstoða notendur með nýja löggjöf um persónuvernd og er það gert í eftirfarandi röð:
- Leið til að krefja umsækjanda um samþykki áður en hann sendir inn umsókn ásamt því að umsækjandi getur séð og eytt sínum gögnum.
- Leið til að leita að gögnum starfsfólks í öllu kerfinu og taka út upplýsingar í Excel eða Json.
- Leið til að eyða gögnum starfsmanna (framundan).
- Dulkóðun gagnagrunna H3 (framundan).
Persónuvernd í H3 Ráðningar
- Hægt er að krefja umsækjanda um samþykki - sjá leiðbeiningar hér.
- Umsækjandi getur séð sín samþykki, umsóknirnar sínar, og eytt sínum gögnum - sjá leiðbeiningar hér.
Persónuvernd í H3 Laun, Stjórnun, Fræðsla, Mínar síður:
Hægt er að:
Afhenda upplýsingar á lesanlegu og tölvutæku formi:
- Hægt er að leita að öllum gögnum starfsmanna í H3 sem birtir lista sem hægt verður að taka út í Excel eða Json (tölvutækt form) og afhenda starfsmanni.
- Ef starfsmaðurinn sem leitað er að er óvirkur er hægt að eyða upplýsingum um hann að undanskildum launaupplýsingum yngri en sjö ára.
- Það verður á ábyrgð hvers fyrirtækis hvaða gögnum er eytt og hvaða gögn verða afhent starfsmönnum.
- Sjá leiðbeiningar hér.
Setja af stað skipulagða eyðingu gagna:
- Boðið verður upp á skipulagða eyðingu gagna fyrir skilgreind gögn fyrir starfsmenn sem merktir eru sem óvirkir.
- Einnig mun vera hægt að eyða skjölum eða eyðublöðum hjá virkum starfsmönnum.
- Virknin er væntanleg.
Dulkóða gögn um starfsmenn:
- Í byrjun 2019 er áætlað að dulkóða gagnagrunnana sem geyma H3.