Sniðmát notenda

Notendasniðmát í Bakverði eru notuð til að afrita upplýsingar um notendaaðgang yfir á notendur.

Eftir að búið er að afrita notendasniðmát yfir á starfsmann er hægt að breyta notendaaðgangi s.s. að veita honum viðbótaraðgang.

Með Bakverði koma fern grunnsniðmát:

  1. Starfsmenn lesaðgangur: eingöngu lesaðgangur að eigin tímaskráningum

  2. Starfsmenn eigin skráningar: geta unnið með eigin tímaskráningar

  3. Stjórnendur: veitir aðgang að skráningum starfsmanna og völdum skýrslum. Veita þarf sérstakan aðgang að deildum sem stjórnandi má sjá starfsmenn í

  4. Launafulltrúar: veitir aðgang að umsjón og grunngögnum

Hægt er að breyta grunnsniðmátum og bæta við fleirum.

Sniðmátum er breytt undir Stillingar - Kerfisaðgerðir - Sniðmát

Þegar búið er að stilla af sniðmátið og Geyma þarf að laga réttindi notenda að sniðmátum.

Starfsmenn eru þá færðir yfir í hægri dálkinn og sniðmátið valið.

Ef starfmaðurinn hefur aukin réttindi en sniðmátið segir til, þá er hægt að haka í “ekki eyða réttindum sem notendur höfðu utan sniðmáts”

Vista með því að velja - Laga réttindi að sniðmáti.