Fræðsluskráningar

Skráningarmyndin Fræðsla í H3 stjórnun og H3 Fræðsla er notuð til að skrá þá fræðsluviðburði sem starfsmaður hefur sótt. Fræðslan getur verið sem dæmi í formi námskeiða, fyrirlestra, vinnustofa, ráðstefna eða annað.

  • Hægt er að skrá alla fræðslu hvort sem hún hefur farið fram innan eða utan fyrirtækis/stofnunar.

  • Skráningar í Fræðslu eiga aðeins við um þá fræðslu sem þegar hafa átt sér stað, þannig að staða þátttöku er alltaf merkt Lokið.

     

Ferli skráningar er á þessa leið:

  • Fyrst þarf að stofna flokka og form

  • Síðan þarf að stofna Efni (fræðsluviðburðinn sjálfan).

  • Þá er hægt að skrá fræðsluviðburð á einn starfsmann í einu eða marga í einu.

Stofngögn fræðslu

  • Efni er fræðsluviðburðurinn sjálfur - heiti hans og segir til um innihald fræðslunnar. Dæmi um efni gætu t.d. Excel, skyndihjálp, enska o.s.frv.

  • Flokkar. Hægt er að flokka efnin niður t.d. Hugbúnaður, öryggismál, tungumál o.s.frv. Þegar nýr flokkur efnis er búinn til er nóg að gefa honum heiti. Númerið kemur sjálfkrafa þegar vistað ef ekkert er slegið inn.

  • Form segir til um hvernig efninu er miðlað t.d. Námskeiði, fyrirlestur, vefnámskeið, ráðstefna, vinnustofa o.s.frv.

Skráning efnis

  1. Velja Fræðsla-efni

  2. Stofna nýja færslu með insert eða smella á hvíta blaðið

  3. Skrá númer efnis. Gott er að búa sér til einhverja reglu fyrirfram, t.d. nota 3 bókstafi og 3 tölustafi í öllum númerum, t.d. HUGxxx fyrir öll hugbúnaðarnámskeið. Ef ekkert er skráð í þennan reit, úthlutar kerfið nýju númeri.

  4. Skrá heiti efnis í reitinn heiti. Ráðlegt er að hafa heitið ekki of sértækt ef gert er ráð fyrir að efnið verði endurtekið, þ.e. að sama eða sambærilegt námskeið verði haldið aftur. Ef nýtt efni er búið til í hvert sinn sem ákveðið námskeið er haldið, getur yfirsýn tapast yfir sótta fræðslu.

  5. Velja flokk og form efnis. Þegar fleiri en ein aðferð er notuð til að fara yfir efnið, er t.d. hægt að velja algengasta formið sem notað er eða búa fyrst til nýtt almennt form, ss. samsett form og velja það svo í skráningunni.

  6. Skrá klukkustundafjölda í tímafjöldi, þ.e. þann tíma sem almennt tekur að fara yfir efnið.

  7. Skrá einingar sem fræðslan veitir, ef við á, t.d. ef það telur til launahækkana

  8. Haka í birta í ferilsskrá ef skráningin á að geta birst í forsniðnum skjölum, t.d. fræðsluyfirliti eða ferilskrá.

  9. Haka í skráanlegt í starfsmannagátt ef starfsmenn eiga að geta skráð sig sjálfir á atburð með efninu. Hér þarf starfsmaður að hafa aðgang að mínum síðum eða að búið sé að setja upp tenginu við innrivef til skráningar á fræðsluviðburð

  10. Í neðri hluta skjámyndarinnar Lýsing) er sett inn lýsing á efninu. Mikilvægt er að vanda vel til þessa texta, t.d. með því að skrá markmið með fræðslunni og aðrar hagnýtar upplýsingar

Skráning fræðslu á einn starfsmann í einu

  1. Velja fræðsla

  2. Stofna nýja færslu með insert eða smella á blaðsíðumerkið

  3. Velja starfsnúmer þess er sótti færsluna

  4. Velja Efnið (námskeiðið) sem viðkomandi sótti

  5. Skrá dags. frá og dags. til

  6. Hægt er með því að skrá upplýsingar í tíma og kostnað

  7. Ef við á, þá er hægt að skrá einingar og einkunn

  8. Haka við birta í ferilskrá ef færslan á að birtast í forsniðinum skjölum

  9. Gildið í reitnum staða þátttöku er alltaf merkt lokið

Að skrá færslu á marga starfsmenn í einu

  1. Velja Stjórnun-mannauður

  2. Velja viðkomandi starfsmenn úr listanum (halda niðri Ctrl takka til að velja einn og einn, halda niðri Shift til að velja margar í röð)

  3. Velja Aðgerðir-skrá fræðslu

Þá opnast þessi gluggi og hægt að fylla út í dálkana sem við á sbr. efni, haldið af, dagsetningar, tímafjölda o.s.frv.

Athugið að þegar fræðsla er skráð á þennan hátt, getur Staða aðeins verið „Lokið“ – ekki er hægt að nota þessa tegund skráninga til að skipuleggja fræðslu fram í tímann.