Menntun starfsmanna

Skráning á menntun starfsmanna

Í valmyndinni Menntun eða í Mannauður-menntun er hægt að skrá menntun starfsmanna.

eða

Smellt er á plúsinn eða blaðsíðutáknið til að búa til nýja færslu.

Skráningin fer þannig fram að valið er úr flettilistum/stofngögnum fag, menntastig og menntastofnun sem við á. Hægt er að skrá inn einingar og einkunn ef þörf er á.

Mikilvægt er að skrá inn dagsetningar námsins, þ.e. í dagsetningarreitina Hóf nám og Lauk námi. Ástæðan fyrir mikilvægi þess er að þegar gögn eru tekin út til greininga í teningum þá er horft til skráningar í þessum reitum.

 

Athugið að stofngögn menntunar; þ.e. listinn yfir fög, menntastig og menntastofnir eru ekki tæmandi en auðvelt er að bæta við jafnóðum því sem vantar - smellið hér

Yfirlit yfir skráða menntun

Ef smellt er beint á valmyndina Menntun færðu yfirlit yfir allar skráðar menntunarfærslur í kerfinu (m.v. þann aðgang sem þú hefur).