Stöðluð svör til umsækjenda, sérstaklega þau sem H3 Ráðningar senda sjálvirkt, er eitt af því sem flýtir hvað mest fyrir í úrvinnslu umsókna og tryggir að allir umsækjendur þínir fái svör.
Til þessa eru notuð tölvupóstsniðmát sem þú getur búið til og breytt eftir þörfum.
Búa til eða breyta tölvupóstsniðmáti
| - Tölvupóstsniðmát er að finna í Ráðningar > Tölvupóstsamskipti > Tölvupóstsniðmát
- Veldu tölvupóstsniðmátið sem við á í listanum
- Fyrirsögn: hér skrifar þú fyrirsögnina póstsins sem sendur verður út
- (en): ef ráðningavefurinn er á öðru tungumáli s.s. ensku velur skrifar þú fyrirsögnina á því tungumáli hér
- Texti tölvupósts: hér skrifar þú efni bréfsins sem umsækjandi fær. Með því að smella á blaðsíðutáknið getur þú valið inn breytur s.s. nafn umsækjanda og starfið sem auglýst var – athugaðu vel að þú mátt ekki eiga við þær breytur í textanum. Ef ráðningavefurinn er á öðru tungumáli velur þú heiti þess tungumáls til þess að skrifa efni bréfsins á því tungumáli.
- Tegund tölvupósts: Að öllu jöfnu velur þú Samskipti við umsækjendur
|
Finna svarpósta fyrir ráðningabeiðni
- Til að finna og breyta tölvupóstum sem sendir eru sjálfvirkt þegar umsóknir eru mótteknar gerir þú eftirfarandi:
Ferð í Ráðningar > Ráðningabeiðnir
Í lista ráðningabeiðna hægrismellir þú á dálkaheiti listans og velur inn reitinn Svarskeyti* - þar sérðu heiti tölvupóstsniðmátsins sem ráðningakerfið sendir til umsækjenda
Ef þú vilt breyta um tölvupóstsniðmát fyrir ráðningabeiðnina
Smellir á CTRL og T til að virkja listann
Velur nýtt tölvupóstsniðmát í reitnum Svarskeyti*
Breyta svarbréfi einu sinni
| Þú getur breytt stöðluðum tölvupósti til að aðlaga svarið að umsækjendur í hvert sinn: - Þú ferð í Ráðningakerfi >umsóknir og velur þær umsóknir sem þú vilt aðlaga tölvupóst fyrir
- Velur Aðgerðir > Úrvinnsla umsókna
- Hakar í Senda tölvupóst og velur tölvupóstsniðmát í reitnum Veldu snið
- Í textaglugganum fyrir neðan getur þú breytt svarbréfinu eftir þörfum; þetta hefur engin áhrif á tölvupóstsniðmátið
- Ef þú vilt breyta tölvupóstsniðmátinu getur þú valið Breyta sniðmáti neðst í glugganum.
|