Afmælisbörn
Afmælisbörn
Neðst á Verkborðinu (Stjórnun > Verkborð) má sjá lista yfir næstu afmæli starfsmanna.
Á listanum eru sýnileg 5 næstu afmælisbörn en ef smellt er á hnappinn Opna lista má sjá öll afmælisbörn ársins.
Hægt er að velja hvort allir starfsmenn í starfi birtist á þessum afmælislista eða ekki. Það er gert með því að fara í Stjórnun > Starfsmenn (eða Laun > Starfsmenn), finna reitinn/dálkinn Birting og velja „Á ekki að sjást“ ef starfsmaðurinn á ekki að birtast á afmælislistanum eða „Birta á innri vef“ ef starfsmaðurinn á að birtast á afmælislistanum.
Athugaðu að starfsmenn sem settir hafa verið í stöðuna „Hættur“ birtast ekki á afmælislistanum, jafnvel þótt stillingin „Birta á innri vef“ hafi verið valin í reitnum/dálkinum Birting.
Áminningar um afmæli
Stilla má áminningar fyrir afmæli starfsmanna í gegnum verkborðið. Hægt er að láta senda sjálfvirkar áminningar á stjórnendur um afmæli starfsmanna sinna og einnig er hægt að senda áminningu á svonefnda umsjónarmenn sem hafa til dæmis hlutverk sem tengjast afmælum, s.s. að panta gjafir. Ennfremur er hægt að láta senda sjálfkrafa póst á starfsmanninn sjálfan á afmælisdegi hans.
Til að stilla áminningar er farið í Stjórnun - Verkborð - Stilla áminningar (undir Afmælisbörn). Þar má annað hvort breyta áminningu sem til er fyrir eða setja upp nýja áminningu.
Fylla þarf út reitina Deild (t.d. velja ALLT ef engin deild á að vera undanskilin) og Efni og setja inn viðeigandi breytur og/eða texta í reitinn Meginmál.
Breyturnar Nafn afmælisbarns $[nafn] og Afmæli $[lokafrestur] eiga eingöngu við þegar sett er upp tölvupóstsniðmát fyrir starfsmanninn sjálfan, þ.e. fyrir afmæliskveðju til starfsmannsins.
Breytan Afmælislisti $[verkefnalisti] á eingöngu við þegar tölvupóstsniðmát er sett upp fyrir Stjórnanda eða Umsjónarmann.
Því næst er smellt á hnappinn Ný lína.
Í reitinn Fjöldi daga fyrir (+/-) er settur inn dagafjöldi fyrir afmælisdag sem áminningin á að berast (talan 2 þýðir til dæmis að áminningar verða sendar tveimur dögum fyrir hvert afmæli), valinn Móttakandi t.d. Stjórnandi (næsti yfirmaður) og að lokum smellt á hnappinn Vista.
Nýir umsjónarmenn eru stofnaðir með því að smella á Stilla áminningar og svo Umsjónarmenn:
Hér er dæmi um uppsetningu á afmæliskveðju sem send er á starfsmanninn sjálfan, á afmælisdeginum hans:
Hafi áminningar ekki verið notaðar áður hjá fyrirtækinu þarf að byrja á að láta virkja þær. Við mælum með að hafa samband við h3@advania.is til að virkja áminningarnar.
Til þess að geta stillt áminningar um afmæli þarf notandi einnig að hafa aðgangseininguna dash1041 í aðganginum sínum.