2.4 Stofn - Starfsmenn - Starfsmenn
Þegar búið er að stofna og skrá alla launþega í Launamenn þá þarf að setja inn upplýsingar á starfsmannaspjöldin.
Með kerfinu koma listar fyrir Ástæður sem tengjast því þegar starfsmenn eru hættir eða í leyfi og Tegund ráðninga. Gott er að renna yfir þessa lista og skoða hvort það er eitthvað sem þarf að bæta við og stofna áður en farið er í að stofna starfsmenn í kerfinu. Ef stofna þarf nýja tegund ráðninga eða ástæðu er það gert í Stofn - Starfsmenn - Ástæður eða Stofn - Starfsmenn - Tegund ráðninga.
Nú þarf svo að skrá inn allar upplýsingar um starfsmanninn. Allar stofnupplýsingar sem voru áður skráðar inn í kerfið fyrir svið, deildir, verk, verkþætti, starfsstéttir, launatöflur o.fl. eiga þá að birtast í viðkomandi felligluggum.
Stofnun starfsmanna
Farið í Starfsmenn og ýtt á Insert og þá er hægt að byrja að skrá inn á starfsmannaspjaldið. Fyrst er flipinn Starfsmaður valinn og skráð þar inn
Dæmi um skráningu
Hægt er að setja inn Starfsþróunarálag og Menntunarálag sem samanlagt gerir Persónuálag starfsmannsins.
Þessi virkni er eingöngu aðgengileg með Tímavídd og hefur bein áhrif á þrep starfsmannsins í launatöflunni.
Með þessu er hægt að bæta við á auðveldan hátt þegar starfsmaður bætir við sig t.d. menntunarálagi sem á að hafa áhrif til hækkunar launa.
Til að virkja Persónuálagið í fyrirtækinu þarf að fara í Stofn-Stillir og “Kveikja á persónuálagi”.
Skýringar á reitum
Stofna starfsfólk með innlestrarskjali
Hér á hliðinni er skjal með heiti á dálkum til þess að stofna starfsfólk með innlestri.
Þeir dálkar sem eru þörf á að fylla út. ATH, hægt er að lesa inn og stofna starfsmenn án þess að fylla þessa dálka út. En ef reynt er að eiga við starfsmannaspjaldið án þess að þessar upplýsingar séu til staðar munu þið fá villur.
Starfsheiti
Deild
Samþykktarhópur (ef þeir eru í notkun)
Verk
Verkþáttur
Starfsstétt
Staða starfs
Staða
Innlestur fer svo fram undir Laun - Starfsmenn - Hægri smella á svæðið undir Launamenn - Flytja inn - Flytja inn excelskjal
Ef villa kemur upp á t.d. 2 starfsmönnum af 50. Þá stofnast 48 starfsmenn í H3 og þarf að laga þá tvo sem komu á villu.
Þegar lesið er inn excel skjalið poppar upp gluggi með athugasemd “Listinn verður hreinsaður og þar verður birtar þær færslur sem hafa verið fluttar inn. Villtu halda áfram”
Ekki er átt við að starfsmannalistinn verður strokaður út og nýr tekir við, heldur er átt við að ef starfsmaður er til í kerfinu og hann kemur einnig fram í skjalinu, en með örðum upplýsingum þá taka nýju upplýsingarnar yfir.
Í starfsmannamyndinni eru fliparnir Fastir og hlutf.liðir og Lífsj. og Stéttarf. og eru næstu skref að skrá upplýsingar þar inn, sjá leiðbeiningar hér
2.5 Stofn - Starfsmenn - Lífeyrissjóðir starfsmanna
2.6 Stofn - Starfsmenn - Stéttarfélög starfsmanna