3. Tenging við launakerfi

Þegar gögnin eru sótt í launakerfið raðast þau í dálka eftir skilgreiningu launaliða í þessari mynd.

Við þurfum að stofna nýjan gildistíma fyrir áætlunarárið ef einhverjar breytingar hafa orðið á launaliðum frá fyrra ári.  Þegar við erum búin að skrá inn gildistímabilið og vistum færsluna eru launaliðir afritaðir frá fyrri gildistíma, með því að smella á uppfæra gögn sækjum við inn breytingar í launakerfið.

Athugið að áður en smellt er á Uppfæra gögn þarf að vera búið að gera launaliði óvirka í H3 laun.

Allir virkir launaliðir koma í listann og það þarf að setja á þá áætlunardálk

Ef margir launaliðir hafa sama áætlunardálk þarf að ákveða hver þeirra fær hak í "Áætlun einingaverð"  það stjórnar því hvaða hlutfall er sótt í launatöfluna í launakerfinu.

Ef við þurfum að sækja færslur í reiknihópa eða hlutfallaða liði höfum við hak í "Sækja reiknaðar færslur"

Einingartegund og Reiknitegund er notandanum aðeins til stuðnings þegar launaliðunum er raðað saman í dálka.