7. Áætlun stofnuð og gögn sótt


1. Við stofnum áætlunarár og skilgreinum hvaða tímabil við ætlum að nota. 

Við byrjum á að velja ár sem við ætlum að áætla fyrir og tökum afstöðu til þess hvernig við sækjum upphæðir.  

 

  • "Heimadeild", þá koma einingar á alla starfsmenn sem hafa fengið laun á viðmiðunartímabilinu og launaupplýsingar fyrir starfsmenn á þeirra heimadeild.

  • "Starfsmenn í starfi", hér koma launaupplýsingar um þá starfsmenn sem eru í starfi en einingar á alla aðra sem hafa fengið laun á tímabilinu.

  • "Allar færslur", ef þetta er valið þá koma allar launaupplýsingar óháð yfirskrifuðum upplýsingum t.d. á deildum í Skrá tíma og laun.

2. Við stofnum áætlun og setjum á hana tegund og aðrar stillingar. Fyrsta áætlun er fyrir stjórnenda áætlunargerðarinnar sem sækir grunngögnin í launakerfið, áður en millistjórnendur fá aðgang að gögnum er grunnáætlun afrituð í upphafsætlun, breytingar eru skoðaðar í tening.


3. Smellum á upphafsstilla og ákveðum hvaða mánuðir úr raungögnum eru sóttir, ef verið er að vinna áætlun í september, er þetta haft eins og hér að neðan.


Áætlunarmánuðir eru þeir mánuðir sem við ætlum  að áætla fyrir
Raunmánuðir eru þeir mánuðir sem við sækjum einingafjöldann í, á hvern áætlunardálk.

4. Farið er í Aðgerðir, efst í hægra horni skjámyndarinnar og valið "Sækja gögn í áætlun".  Ef stofnuð hefur verið tímavídd á starfsmann fram í tímann, t.d. breytingar á deild, kemur það með í áætlunina.

Ef einhver áætlunardálkur hjá okkur er meðhöndlaður sem meðaltal fáum við val um tímabil.  Hér getum við líka valið um að sækja gögn í einn áætlunardálk

5. Í "Skráning launaáætlana" er áætlunin unnin og gerðar breytingar ef þarf.

Þegar við höfum yfirfarið fyrstu áætlunina er búin til önnur áætlun sem er ætluð stjórnendum, í hana eru afrituð gögnin úr fyrri áætluninni.  Áætlanir geta verið margar allt eftir því hvernig ferlið er á hverjum stað. Aldrei er nema ein áætlun opin fyrir breytingar hverju sinni.