Eyðublöð

Hægt er að búa til margs konar eyðublöð í H3 Mannauði, til dæmis eyðublöð fyrir árleg starfsmannasamtöl, starfslokasamtöl og fleira. Þau eru einnig notuð sem grunnur að virkninni í Starfslýsingum.

Athugaðu að í H3 er einnig að finna annars konar "eyðublöð", þ.e. forsniðin skjöl, en þau gera notandanum kleift að safna saman gögnum sem skráð hafa verið í kerfið og birta á einu skjali. Ráðningarsamningur er dæmigert forsniðið skjal.