Tenging skírteina og fræðslu
Skírteini getur haft tengsl við þátttöku á námskeiði (Efni) þannig að skírteini stofnist og uppfærist sjálfkrafa að loknu námskeiði, hafi skírteinið verið tengt við efnið sem um ræðir.
Tenging efnis og skírteinis er gerð í skjámyndinni Fræðsla – Efni undir Tenging við skírteini:
Hægt er að tengja efni við ákveðið skírteini þannig að þegar starfsmaður hefur lokið viðkomandi fræðslu í fyrsta sinn þá stofnast tengt skírteini sjálfkrafa á starfsmanninn OG þegar starfsmaður tekur námskeiðið aftur, þá uppfærist gildistími á tengdu skírteini sjálfkrafa um sama fjölda mánaða og tilgreindur hefur verið í reitnum Gildistími(mán).
ATHUGIÐ: Þetta gerist aðeins sjálfkrafa þegar:
Hakað hefur verið við Stofnar skírteini í tengingu skírteinis og efnis (sjá mynd hér fyrir ofan) OG
Fræðsluskráningin hefur gildin Staða þátttöku::Lokið og Afgreitt staða::Samþykkt.
Á skýringarmynd sést skírteini sem H3 hefur stofnað sjálfvirkt á launamann eftir að hann sótti fræðslu þar sem tengsl voru sett upp milli efnis og skírteinis sbr. skýringarmyndir hér að ofan.
ATHUGIÐ: um sjálfvirka uppfærslu á gildistíma skírteina gilda þrjár reglur sem þarf að kynna sér.