Persónuvernd (GDPR) og minnispunktar

Hægt er að taka út allar upplýsingar er varða starfsmann í H3+ og það á einnig við um minnispunktana. Annars vegar er hægt að taka gögnin út í Excel og hins vegar á Json formi (tölvutækar upplýsingar).

Umsjónaraðili kerfisins gefur aðgang að virkninni fyrir persónuvernd, en nálgast má virknina á Laun eða Stjórnun flipanum í H3+. 

  • Til að opna fyrir virknina á Laun flipanum, gefðu fullan aðgang að einingu gdpr1001 - GDPR H3 Laun

  • Til að opna fyrir virknina á Stjórnun flipanum, gefðu fullan aðgang að einingu gdpr1101 - GDPR H3 Mannauður

Til að sækja upplýsingar starfsmanns er smellt á hnappinn Persónuvernd. Þá opnast gluggi þar sem slá má inn kennitölu þess starfsmanns sem um ræðir og smellt á Leita. Undir liðnum Annað má finna Minnispunktana:

Í listanum er hægt að haka við einstaka liði, eða alla, og mun valið endurvarpast í gögnunum sem afhent eru. Loks eru gögnin tekin út í Excel eða Json skjal með því að smella á viðkomandi hnappa. H3 birtir þá glugga þar sem skráð er nafn skjalsins og hvar á að vista það.

Athugið. Við mælum eindregið með að velja vel hver fær aðgang að virkninni fyrir persónuvernd, þar sem með þessum aðgangi sér notandinn öll gögn starfsmannsins frá upphafi, jafnvel þó þeim hafi verið eytt úr H3.