Yfirsýn í þekkingaryfirliti hvaða starfsmenn eru skráðir á námskeið

Nú er hægt að merkja við í þekkingaryfirliti þegar starfsmaður er skráður á tiltkeið námskeið, sem t.d. er haldið utan fyrirtækis eða í rafrænu kerfi. Þannig má hafa yfirsýn yfir hver er skráður á hvaða námskeið í þekkingaryfirlitinu.

Til þess að hægt sé að merkja að starfsmaður sé skráður á námskeið þarf annað af tvennu að vera til staðar:

  • Starfsmaður sé skráður á atburð fyrir tiltekna fræðslu í Fræðsla-Atburðir

  • Starfsgreining (krafa) sé til staðar um að starfsmaður skuli sækja tiltekið námskeið

 

Ef annað af þessu tvennu er til staðar, birtist fræðsluefnið í Þekkingaryfirlitinu ásamt nöfnum þeirra starfsmanna sem eru í Atburðinum eða starfsgreiningunni.

Dæmi á mynd: Eiturefnanámskeið.

Starfsmaður sem merktur er að sé nú þegar skráður á eiturefnanámskeið fær bláan hring utan um þann rauða í þekkingaryfirlitinu.

Til að merkja að starfsmaður sé nú þegar skráður á námskeið utanhúss eða rafræna fræðslu þá er músinni rennt yfir rauða punktinn, þá birtist tannhjóls sem smellt er á og við það birtist skráningargluggi. Smellt er á Skrá og þá birtist blái punkturinn utan um þann rauða.

Þegar starfsmaðurinn hefur lokið námskeiðinu og það er staðfest með fræðslufærslu í valmyndinni Fræðsla, eða ef fræðslufærslan hefur verið til fyrir og fær stöðuna Lokið. þá uppfærist punkturinn í yfirlitinu og verður grænn til staðfestingar á því að starfsmaðurinn hafi lokið fræðslunni.