Launagátt - Launabil
Þegar vörpun launaliða yfir í Launagátt Flóru er afgreidd er næsta skref að stilla af launabil í Flóru.
Launagátt - Launabil
Launabil eru háð starfaflokkum. Til að stilla af launabil starfaflokks er smellt á Bæta við launabil, og til að breyta skráðu launabili er smellt á Breyta launabil.
Sambærilegur gluggi opnast hvort sem er valið og viðeigandi upphæðir settar inn í neðri og efri mörk, ásamt lýsingu.
Smella þarf á Vista til að vista breytingar.
Eftir að launabil eru komin sjáum við undir Launagátt > Starfsfólk, hvernig laun starfsmanna raðast innan eða utan launabila.
Laun starfsmanns koma rauðletruð ef þau eru fyrir utan launabil. Neðri mörk launabils koma rauð séu laun starfsmanns undir launabili. Efri mörk launabils koma rauð séu laun yfir launabili.
Hér er dæmi um starfsmann á lægri launum en launabil starfaflokks hans segir til um: