Vaktir
Í Bakverði er hægt að setja upp vaktir þar sem skiptast á vinnulotur þar sem starfsfólk ýmist vinnur eða er í fríi. Uppsetning vakta í Bakverði gerir ráð fyrir að um reglubundið fyrirkomulag sé að ræða þar sem lítið er um breytingar eftir að starfsmaður hefur verið settur á vakt.
Hvernig eru vaktir settar upp?
Til að setja upp vaktir þarf að setja upp í eftirfarandi röð:
1. Setja upp Reiknireglur:
Að lágmarki eina reglu sem inniheldur þau atriði sem gilda þegar starfsmaður vinnur á vakt sem hann er skráður á
Eina reglu sem inniheldur þau atriði sem gilda ef starfsmaður vinnur í vaktafríi
2. Setja upp Mynsturreglu: sem segir til um hvernig vinnuvaktir og frívaktir skiptast á í vaktarúllu:
3 Setja upp Vaktareglu: Vaktareglan vísar í vaktarúlluna í mynsturreglunni - og segir til um á hvaða dagsetningu fyrsti dagur í vaktarúllu hófst. Algengt er að sú dagsetning sé á mánudegi.
Vaktaskipti
Skipti starfsmenn á vöktum þannig að starfsmaður taki t.d. vakt annars starfsmanns að eigin ósk er hægt að skipta um reiknireglu þannig að starfsmaður reiknist ekki á t.d. yfirvinnutaxta skv. frívakt, heldur eins og hann hefði verið á venjulegri vakt. Það er gert með því að skipta um reiknireglu dagsins í Fólkið mitt>Tímaskráningar:
Þegar skipt er um reiknireglu er við hæfi að skrá Athugasemd s.s. “skipt um vakt við X “
ATHUGIÐ:
Sé vaktarúlla mjög óregluleg t.d. vegna þess að stöðugt er að breyta vaktamynstri hentar ekki ofangreind uppsetning vakta í Bakverði
Nái vaktir yfir miðnætti þarf að gera sér tímareglu fyrir upphaf og enda vaktarúllu - fyrir og eftir miðnætti
Verið er að vinna að Vaktaplanara í Bakverði sem leyfir meiri breytileika í uppsetningu vakta