Kerfið kemur uppsett með tveimur launatöflum
Númer | Heiti | Vinnuskylda 100% | Orlofsstuðull | Nota orlofshækkun | Nota þrepahækkun |
0 | Sameiginleg krónu- og réttindatafla | 0 | 0 | ||
100 | Fyrirtækistaflan | 173.33 | 0 | 0 |
0 Sameiginleg krónu- og réttindatafla
Í sameiginlega krónu- og réttindatöflu er skráð allt sem á við alla í fyrirtækinu og er þá aðallega verið að nota 2 flipa í þeirri töflu, Krónur og Réttindaáramót. Þessari töflu má ekki eyða.
Tenging við allar launatöflur er í gegnum töflulið á launalið
Undir Krónur eru settir þeir launaliðir sem eru sameiginlegir fyrir alla í fyrirtækinu, t.d. hægt að setja orlofs- og desemberuppbót þar inn ef allir eiga að fá sömu krónutölu. Einnig er hægt að setja starfsmannafélag, matarmiða, samgöngustyrk, kílómetragjald o.fl. ef það sama gildir um alla. Við skráum hér líka launaliði sem 0 krónur. Þetta eru þá launaliðir sem hægt er að skrá á hvaða upphæð sem er í skrá tíma og laun. Þeir sækja þá ekki ákveðna krónutöluupphæð eða hlutfall. Ef launaliðir eru með misjafnar upphæðir eftir samningum þá setjum við þá upp í hverri launatöflu fyrir sig. Sjá dæmi um uppsetningu í sameiginlegri töflu:
Launaliður | Heiti | Krónur |
721 | Starfsmannafélag | 2000 |
740 | Matarmiðar | 700 |
190 | Önnur laun án orlofs | 0 |
220 | Álagsgreiðslur | 0 |
270 | Desemberuppbót | 96000 |
260 | Orlofsuppbót | 52000 |
Réttindaáramót koma uppsett með kerfinu og þarf að yfirfara þessa uppsetningu og breyta ef verið er að nota önnur réttindaáramót en eru í þessari uppsetningu.
Athugið að ef ávinnsla t.d. orlofs eða vetrarfrís er flutt úr tímaskráningarkerfi þá getur þurft að skoða á hvaða dagsetningum þessar færslur flytjast því þetta getur haft áhrif á réttindaáramótin. Gott að skoða hvernig þessu er háttað í fyrirtækinu og fara þá yfir málið með launaráðgjafa. |
100 Fyrirtækistaflan
Misjafnt er hvað fyrirtæki eru að nota margar launatöflur og hvort verið er að fara eftir uppsettum launatöflum stéttarfélaga eða hvort launatöflur eru einstaklingsmiðaðar. Það er þá hægt að nota þessa töflu sem fyrstu launatöfluna og gefa henni nýtt nafn eða eyða henni út og búa til nýjar.
Almennt er verið að setja upp launatöflur eftir kjarasamningum, t.d. BHM, VR, Efling, RSÍ o.fl. og þarf þá að setja upp flokka, þrep og rétt hlutföll útfrá vinnuskyldu í hverjum samningi. Það getur líka þurft að setja upphæðir í krónutöluhlutann ef það er eitthvað sem á bara við um þennan kjarasamning og er ekki sett upp í sameiginlegu töflunni.
Samráð skal haft við launaráðgjafa við skráningu og innlestur á launatöflum til að skoða heildarmyndina varðandi fjölda launataflna og skipulag. |
Sjá dæmi um uppsetningar á launatöflum hér
Launatöflur - Skráning upplýsinga
Viðbótarfróðleikur um launatöflur
Launatöflur Flokkar og þrep Hlutföll Krónur Orlofshækkanir Þrepahækkanir Réttindaáramót Launatöflur.