Krónur
Launatöflur - Krónur. Þessi hluti launatöflunnar gefur notandanum talsvert svigrúm. Í öllum fyrirtækjum er til sameiginleg krónutafla með kjarasamningsnúmer 0 þar sem skráðar eru fastar upphæðir. Þessi tafla er víkjandi, þ.e. í launaskráningu byrjar kerfið alltaf á því að leita í þeirri töflu sem skráð er á starfsmann en ef ekkert finnst þar, þá leitar kerfið í sameiginlega töflu (0).
Krónur í sameiginlegri launatöflu innihalda alla launaliði sem sameiginlegir eru öllum kjarasamningum, t.d. dagpeningar og bifreiðastyrkur. Krónur í öðrum töflum innihalda það sem er sértækt fyrir hvern samning.