Taktikal - Setja upp rafrænar undirskriftir í H3


H3 mannauðslausnir nota Taktikal til þess að undirrita skjöl, s.s. ráðningasamninga, með rafrænum hætti.  

Fyrirtæki sem hafa aðgang að Taktikal geta ýmist notað rafrænar undirskriftir gegnum H3 eða beint frá vefsíðu Taktikal https://www.taktikal.is/

Kostir þess að nota Taktikal gegnum H3 eru:

  1. Tengja undirrituð skjöl beint við skjalaskáp starfsmanna.
  2. Hægt er að nota tölvupóstsniðmát í H3 til að aðlaga pósta sem fylgja rafrænni undirskrift að þörfum fyrirtækisins.

Uppsetning Taktikal

Áður en Taktikal er sett upp þarf fyrirtæki að hafa þrennt:

  1. Samning við Taktikal:  https://www.taktikal.is/
  2. Business áskrift til að hafa aðgang að API
  3. Fara á https://app.taktikal.is/settings/access-keys og sækja CompanyKey, API-Key og FlowKey til að setja inn í H3.

Þegar ofangreint liggur fyrir er haft samband við Ráðgjafa H3 til að tengja Taktikal við H3 mannauðslausnir.