Reglureiknir: Setja reglu á starfsmann
Reglur sem búnar eru til í Reglureikni birtast ekki í listanum Stillingar>Útreikningur>Reiknireglur í Bakverði.
Setja reglu á starfsmann:
Veldu Umsjón>Starfsmenn>Breyta starfi
Á flipanum Starfsferill er búinn til nýr starfsferill eða þeim nýjasta breytt.
Þegar smellt er í reitinn Regla raðast reglur úr Reglureikninum efst í númera- eða stafrófsröð
ATHUGIÐ: Þegar regla er búin til í fyrsta sinn í Reglureikni getur tekið nokkrar mínútur áður en hægt er að setja hana á starfsmann í Bakverði. Breytingar á reglu í Reglureikni munu hins vegar strax birtast eftir að starfsmaður hefur verið endurreiknaður í Bakverði.