Tengjast teningaskýrslum

Leiðbeiningarnar hér að neðan eiga við þegar þú tengist teningaskýrslu í fyrsta sinn.

Þær eiga einnig við ef þú:

  • sækir þér nýja teningaskýrslu s.s. í útgefnum teningaskýrslum

  • missir tengingu við teningaskýrslu og þarft að endurnýja tenginguna

 

 Tengjast teningaskýrslum 

  • Opnaðu teningaskýrslu í Excel

  • Búðu til flipa/sheet og veldu: Data>Get Data>From Database>From Analysis Services

 

  •   Smelltu á Next 

  • Þá færðu val um fyrirtækið og velur tening til að tengja skjalið við:  

 Þá verður til tengistrengur á viðkomandi tening.

 

Virkja tengistreng á flipum teningaskýrslu

Tengistrenginn sem búinn var til þarftu að afrita (CTRL A og CTRL C) inn á sérhvern flipa teningaskýrslunnar.

  • Farðu í Data>Queries and Connections>Properties

  • Á flipanum Definition afritar þú allt í reitnum Connection String 

  • Á sérhverjum flipa teningaskýrslunnar ferðu í Data>Queries and Connections>Properties

  • Á flipanum Definition afritar þú tengistrenginn yfir í reitinn Connection String (með CTRL og V)

 

ATHUGIÐ:

  • Ef teningaskýrslan þín vísar á fleiri en einn tening s.s. bæði á Launa- og réttindatening þarf að útbúa eina tengingu per tening og afrita á viðeigandi flipa

  • Til að búa til tengingu þarft að vera í Excel forritinu á vél þinni – ekki í skýjaútgáfu Excel

  

ATHUGIÐ:

Af öryggisástæðum er ekki hægt að hafa teningaskýrslur stöðugt opnar. Teningaskýrslur missa tengingu við tening eftir 8 klukkustundir og þarf þá að loka teningaskýrslunni og opna aftur.

Til að geta tengst teningum þarf örugga tengingu:

  • Ef þú ert erlendis þarftu að fara gegnum IP tölu sem skráð er á Íslandi s.s. með því að vera VPN tengd vinnustað þínum

  • Vera í stöðugri tengingu: bein tenging með snúru er stöðugra en þráðlaust net