Lífeyrissjóðir

Í Stofn /  lífeyrissjóðir eru sjóðir stofnaðir og þeim haldið við.  Það er á ábyrgð notenda að gæta þess að alltaf séu réttar upplýsingar skráðar á hverjum tíma.


Það þarf að skrá  upplýsingar um útreikning á lífeyrisiðgjaldi.  Hægt er að vísa skilagreinum og greiðslum hvers gjalds á mismunandi sjóði ef þörf krefur.


Þegar lífeyrissjóður er stofnaður er hann sjálfgefið virkur.  Merkja þarf sérstaklega ef hann á að vera óvirkur.  Ef lífeyrissjóður er gerður óvirkur athugar kerfið hvort hann er skráður á einhvern starfsmann í starfi.  Ef svo er kemur viðvörun þar sem engin skráning má vera á óvirkan lífeyrissjóð.  Óvirkur lífeyrissjóður sést eingöngu í stofnflipa og kemur ekki fram í uppflettigluggum.  Þessi virkur/óvirkur virkni er sérstaklega gagnleg  þegar lífeyrissjóðir eru sameinaðir og við þurfum að tryggja að viðkomandi starfsmenn séu með rétta tengingu á sameinaða sjóðinn.


Greiðsla: 

Skilgreining á greiðslumáta, greiðsludagsetning og bankaupplýsingar viðtakanda


Skilatímabil: 

Niðurbrot/Greiðslutíðni: Reiknaðar lífeyrissjóðsfærslur fá alltaf dagsetningar og skilatímabil í samræmi við þær færslur sem var reiknað af, en fastar tölur fara á skilatímabil eftir greiðslutíðni.

Fyrra tímabil í útborgun: Allar lífeyrissjóðsfærslur fara á fyrri mánuð á útborgun, ef mánuðirnir eru 2.


Það er skilgreint á hvern sjóð fyrir sig við hvaða aldur á að byrja að reikna iðgjaldið og hvenær því verður hætt.  Það er frádagur á launafærslum sem virkjar eða óvirkjar reikninginn.

Þegar sjóður er stofnaður kemur sjálfgefið í hann „Lágmarksaldur“ 16 og „Hámarksaldur“ 70.  Þessu er hægt að breyta að vild, en má ekki vera tómt.Líf


Einkennisnúmer er það númer sem skráð er sem númer sjóðs í rafrænum skilum.  Þetta númer má finna á vef Ríkisskattstjóra eða fá upplýsingar hjá Lífeyrissjóðnum sjálfum.  Textinn við einkennisnúmerið er lesinn upp úr "Jóakim"sem er útbreiddasta lífeyris- og félagakerfi á Íslandi.  

Í "Skilaaðgerð" er valið um það hvernig senda á skilagreinar, sjá möguleika í uppfletti.  Ef valið er Rafrænt (XML) þarf að setja inn notandanafn og lykilorð í töfluna Stofn/Veflyklar.

Ef það er hak í "Virk vefþjónusta" þá getur sjóðurinn tekið við skilagreinum á XML formi, það væri þá valið í "Skilaaðgerð".


Breytingar á gjöldum (Tímavídd):

Dæmi um uppsetningu á reikningi á almennum lífeyrissjóði og til að hækka greiðslur í lífeyrissjóð þá þarf að tvísmella á línuna sem á að breyta

Þá opnast þessi gluggi og til að bæta við nýjum gildisstíma þarf fyrst að setja lokadag á eldri færsluna og síðan að smell á + til að gera nýja línu og setja nýtt gildi inn.


Athugið að ef stofna þarf lífeyrissjóði fyrir iðgjaldalaus réttindi fyrir B-deildir LSR og Lsj. hjúkrunarfræðinga, að hafa samband við ráðgjafa til að fá leiðbeiningar h3@advania.is