Reiknihópur R21
Í H3 er til reiknihópur sem heitir R21 og er niðurfærsla á móti fríum. Ef haldið er sérstaklega utan um kostnað vegna veikinda, veikinda barna eða orlofs þá er þessi reiknihópur notaður og ef þetta á við allt fyrirtækið þá er þessum reiknihópi bætt við þá reiknihópa sem eru inni í Stofn – Launagreiðandi.
Þetta virkar þá þannig að þegar skráðir eru tímar inn á launaliðina fyrir veikindi og orlof þá niðurfærir kerfið á launalið 105700 Dagvinna mótbókun.
Dæmi: Skráning launa
Þegar búið er að reikna þessar færslur þá lítur útreikningurinn svona út. Færslurnar núllast út en kostnaðurinn færist af VL yfir á OR og VE og því er hægt að taka kostnaðinn fyrir þessa liði sérstaklega út.
Síðan er hægt að stilla þetta þannig að þessar færslur (plús og mínus) sjáist ekki á launaseðli.