Villuprófa skilagrein RSK
Nú geta notendur framkvæmt villupróf á staðgreiðslu áður en útborgun er lokað.
Við mælum með því að alltaf sé farið í að villuprófa áður en útborgun er lokað, það getur verið vandasamt að leiðrétta ef RSK finnur villu í staðgreiðsluskilagreininni.
Þetta er einnig gott verkfæri til að stemma af, auðvelt að taka út í excel.
Virknin
Ferlið: Ferli: Laun – Afstemming – Skilagrein RSK
Sjálfgefið kemur upp fyrri mánuður á útborgun sem er valin.
Dæmi: verið er að vinna með maí eftirágreidda og júní fyrirframgreidda þá kemur sjálfgefið í vali maí mánuður.
Smellt er á “opna lista”
Ef velja á að keyra á villuprófun á alla starfsmenn þá er valið með því að smella inn í listann CTRL+A þá myndast þríhyrningur fremst í línu fyrir framan alla starfsmenn í fyrirspurn, einnig er hægt að velja einstaka starfsmenn eða hóp með því að halda shift niðri og smella í frá og til með músinni á þá starfsmenn sem eiga að vera í vali.
Undir “Aðgerðir” er svo smellt á “Villuprófa skilagreina RSK”
RSK leyfir einungis að villuprófa ein mánuð í senn og því þurfa þeir notendur sem eru að vinna með fyrirframgreidda og eftirágreidda að villuprófa einn mánuð í einu, það er hægt að villuprófa eins oft og vilji er hvort sem það er einn starfsmaður eða allir.
Fyrirspurnin
Fyrirspurnin kemur með svör frá RSK um niðurstöðu sendingar á villuprófun hvort villuprófunin hafi tekist eða athugasemdir ef við á og hvenær villurprófun hafi farið fram dagsetning og tímasetning.
Ef notandi vill stemma sig af handvirkt þá getur viðkomandi tekið út fyrirspurnina í excel.
Þá eiga dálkarnir samtals launafjárhæð + staðgrsk. Dagpen. + staðgrsk. Ökutækjast. – mínust greitt í lífeyrissjóð að sýna sömu upphæðina og fyrir þrep 1 + þrep 2 + þrep 3.
Dæmi:
A: 1.105.416 – 44.216 = 1.061.200 / 349.018 + 630.829 +81353 = 1.061.200
B: 538.301 + 15.000 – 21.532 = 531.769 / 349.018 + 182.751 = 531.769
Dæmi um villur sem gætu komið upp við villuprófun:
Kennitala 050599-9999 myndar mínus gildi í staðgreiðslu ársins 2021- skilagrein hafnað <br>
Kennitala 0606999999. Lína 1. Kennitala stenst ekki vartölupróf.