Bunkaskráning

Laun / Bunkaskráning

Hérna er hægt að safna saman færslum sem eiga að fara í útborgun, þetta getur verið mjög þægilegt þegar margir eru með eins færslur svo ekki þurfi að fara inn á hvern og einn í skrá tíma og laun.


Bunki getur verið "Margnota" þá haldast færslurnar inni, þrátt fyrir að þær séu settar í útborgun, bunkinn tæmist hins vegar ef hann er ekki "Margnota"

Í "Mengi" er ákveðið hvaða starfsmenn eiga að koma í bunkann

Hér að neðan má sjá að það er sía á launatöflu  og deild 10 og 20 er ekki tekin með.




Laun/Frádráttur

Við ætlum að setja inn bónus fyrir þá starfsmenn sem við höfum filterað á í menginu

  • Hægrismellum á bláu línuna og skilgreinum hvaða dálkar eiga að vera sýnilegir
  • Setjum inn fyrsta starfsmann
  • Hökum í Næsti starfsm. og Efri lína
  • Smellum á "Klára mengi"

Þá koma inn allir starfsmenn sem valdir voru í menginu hér að ofan.


Hægt er að bæta við línum eða breyta ef t.d. það á ekki að vera sami bónus á alla.


Þegar bunkinn er fullunninn er smellt á "Setja í útborgun".  Ef við höfum gert einhver mistök eða viljum bæta við bunkann má smella á "Eyða úr útborgun" þá koma færslurnar til baka í bunkann og hægt er að laga þær til.

  • Mikilvægt er að gera bunkann óvirkan þegar búið er að nota hann


Þegar skrá er lesinn inn í bunka fara færslur beint í  skrá tíma laun og ekki þörf að "Setja í útborgun".