Bókhaldskerfi

Í Stofn / Bókhald / Bókhaldskerfi er skilgreint í hvaða bókhaldskerfi launagögn verða flutt og hvernig skráin á að líta út.


Á myndinni hér til hliðar er búið að setja upp bókhaldskerfið Navision og svæðin í skránni eru aðgreind með ;(semikommu). 


Þetta er aðeins dæmi, bókhaldskerfið getur verið hvað sem er, með hvaða aðgreini sem er og upphæðin getur komið í einn dálk eða tvo.

Færslulýsingu þarf að fá frá þjónustuaðila bókhaldskerfisins og þar þarf að  koma fram:

  • Aðgreinir
  • Lengd svæða ef þau eru að fastri lengd
  • Dagsetningarsnið
  • Eiga kreditfærslur að koma inn með mínusformerki
  • Röð dálka í skránni
  • Tegund, F,V,L eða 0,1,2

Upplýsingar frá launafulltrúa eða bókara fyrirtækis:

  • Á dagsetningin í skránni að vera fyrsti eða síðasti dagur mánaðar
  • Á að sækja lykil í deild, verk, verkþátt, starfsheiti, starfsmann
  • Á að senda færslur skuldareigenda á lánadrottna
  • Á að senda frádráttarfærslur launamanns sem viðskiptamannafærslur