Útgáfa 8387 - Febrúar-uppfærsla
ATH. Eftir að útgáfa 8387 hefur verið tekin inn þarf að endurræsa vefþjónustur
Ferli | Lýsing á virkni | Kerfishluti | Stillingar / leiðbeiningar | |
---|---|---|---|---|
|
| Laun |
|
|
Starfsmaður - tímavídd | Þegar um er að ræða frumstillingarfærslu tímavíddar er nú hægt að eiga við "Gildir frá" dagsetninguna svo lengi sem dagsetningunni er ekki breytt þannig að hún fari aftar í tíma en virkjunardagsetning tímavíddar. Dæmi: Tímavídd er virkjuð 01.12.2020. Nýr starfsmaður er skráður þannig að hann eigi að hefja störf 01.02.2021 en eftir á þarf að breyta þeirri dagsetningu, til dæmis ef starfsmaður kom fyrr eða jafnvel seinna til starfa en áætlað var. Nú er þá hægt að breyta dagsetningunni svo lengi sem ekki farið aftar í tíma en til 01.12.2020 | Laun |
| |
Launamenn Skilagreinar | Lagfæring hefur verið gerð varðandi að þegar skattategund var breytt á fyrirframgreiddum starfsmanni þá fór skilagreinin til RSK með tvöföldum fjársýsluskatti | Laun |
| |
Launamenn Skrá tíma og laun | Ef reiturinn Tegund skatts er auður eru ekki lengur birtar athugasemdir í endurreikningi varðandi að skatthlutföll vanti, en í Skrá tíma og laun birtist rétttilega athugasemdin: Reikna: Það vantar gildi í tegund skatts á launamanni | Laun |
| |
Jafnlaunagögn - Starfaflokkar - Aðgerðir - Búa til innlestrarskjal / Lesa inn innlestrarskjal | Í starfaflokkum er nú hægt að búa til og lesa inn innlestrarskjöl bæði fyrir Starfaflokkar - Stigagjöf og Starfaflokkar - Röðun | Laun |
| |
Laun - Stofn - Stéttarfélög | Reikningur hefur verið lagaður þegar reglan "Föst tala" er notuð | Laun |
| |
Starfsmaður Laun - Hækkanir | Upp kom sú villa að þegar orlofs- og þrepahækkanir voru keyrðar og nýjar færslur urðu til í tímavídd, afrituðust Starfaflokkar ekki upp í nýju færsluna - sú villa hefur verið löguð | Laun |
| |
Tímavídd - villuboð | Ef tímavíddarkeyrslan sem keyrð er á hverjum sólarhring skilaði villu (rautt box í hægra horni) birtast nú villuboðin rétt í dálknum Texti þegar smellt er á boxið: | Laun | Ef upp hafa komið villur við tímavíddarkeyrslu birtist rauða boxið hér að neðan í hægra horni og til að sjá villuskilaboðin og hvers eðlis villan er, er smellt á rauða boxið:
| |
Laun - Greiningar - Fyrirspurnir - Launamenn/Starfsmenn | Dálknum Stéttarfélag hefur verið bætt við fyrirspurnina: Launamenn/Starfsmenn | Laun |
| |
Laun - Greiningar - Fyrirspurnir - Launamenn/Starfsmenn | Svæðinu "Einka farsími" hefur verið bætt við fyrirspurnina: Launamenn/Starfsmenn | Laun |
| |
Dagpeningar | Villuboð í dagpeningum hafa verið gerð skýrari | Laun |
| |
Laun - Skrá tíma og laun | Ef Ráðningarhlutfall starfsmanns er tómt birtist nú athugasemd þess efnis þegar reiknað er | Laun |
| |
Laun - Úttak - Launaseðlar - Vista launaseðla í skjalaskáp | Lagfæring eftir janúar-útgáfu þar sem endingin .pdf datt úr heiti launaseðla þegar launaseðlar voru vistaðir í skjalaskáp | Laun |
| |
Laun - Úttak - Skilagreinar | Lagfæring á virkni sendinga skilagreina fyrir Innheimtustofnun sveitarfélaga | Laun |
| |
Kerfisumsjón - Vinnslur - Afrita uppsetningu samtalna launaseðils/launamiða | Vinnslan "Afrita uppsetningu samtalna launaseðils/launamiða" hefur verið lagfærð og virkar nú í H3+ |
| Eining sys2160 gefur aðgang að vinnslunni | |
Kerfisumsjón - Vinnslur - Innri starfsferlar - Endurbyggja gögn fyrir innri starfsferla | Nýrri vinnslu "Endurbyggja gögn fyrir innri starfsferla" hefur verið bætt við undir Kerfisumsjón - vinnslur - Innri starfsferlar | Laun | Einingin sys2190 gefur aðgang að vinnslunni | |
Innlestur - Þjóðskrá | Nöfn geta nú innihaldið mismunandi tegund efri kommu - dæmi, báðar tegundir kommu: O'Neill eða D´arcy, eru lesnar rétt inn | Laun |
| |
Laun - Starfsmaður - Excel-listar | Bakkað með breytingu sem gefin var út í janúar-útgáfu varðandi innlestur skjala og bandstrik í kennitölu, þegar starfsmannalisti er tekinn út í Excel er kennitöludálkur með bandstriki | Laun |
| |
Almenn virkni | Ef verið er að loka flipa í kerfinu sem inniheldur breytingar sem ekki hafa verið vistaðar, birtist nú gluggi sem aðvarar notanda um að hann eigi eftir að vista breytingar, og eru reitirnir sem um ræðir ásamt breytingum listaðir upp. Dæmi þegar verið er að loka flipa með óvistuðu gildi í reit: Og dæmi um þegar loka á kerfinu en einn eða fleiri flipar innihalda óvistaðar breytingar, þá eru fliparnir listaðir upp: | Almennt |
| |
|
| Stjórnun |
|
|
Stjórnun - Mannauður | Svæðinu Aðalmenntun hefur verið bætt við menntunarfærslu starfsmanns. Notandi getur hakað við þá menntun sem á að vera aðalmenntun starfsmanns. Ef ekki er hakað við neitt, þá vinnur kerfið eins og áður. | Stjórnun |
| |
Stjórnun - Starfsmaður | Nú er hægt að skrá færslur á marga starfsmenn í einu með aðgerðinni Stofna tímavídd Hér má finna leiðbeiningar varðandi skráningu á marga starfsmenn í launahluta kerfisins, hér eiga öll sömu lögmál við, fyrir utan að í stjórnunarhlutanum eru engar launaupplýsingar birtar. | Stjórnun |
| |
Stjórnun - Starfsmaður | Nú er hægt að sjá allar breytingar sem gerðar hafa verið á starfsmanni í aðgerðinni Tímavídd starfsmanns. Þau gildi sem hefur verið breytt birtast þá feitletruð í töflunni. | Stjórnun |
|