Útgáfa 8547 - Maí-uppfærsla

Ferli

Lýsing á virkni

Kerfishluti

Stillingar / leiðbeiningar

Ferli

Lýsing á virkni

Kerfishluti

Stillingar / leiðbeiningar

STRY0026878

Laun - Vinnslur - Yfirfara launalausa starfsmenn

Áfram hefur verið unnið að betrumbótum á vinnslunni Yfirfara launalausa starfsmenn

Ef gera á fasta og/eða hlutfallaða liði óvirka með vinnslunni þarf að fara í Laun - Starfsmenn - Fastir liðir eða hlutfallaðir liðir og setja endadagsetningu á liðina í dálknum Virkur til.

Dæmi um skráningu fastra og hlutfallaðra liða:

Launalok hjá starfsmanni eru áætluð 31.08.2021 en ákveðið var að framlengja við hann til 15.09.2021, því er kostur að skrá dagsetningu í reitinn “Virkur til” aðeins fram yfir fyrirhuguð launalok til að hægt sé að vinna með liðina í vinnslunni.

Þá er hægt að haka í reitina "Gera fasta liði óvirka" og "Gera hlutfallaliði óvirka". Loka skattkorti er hægt að haka við svo lengi sem starfsmaður er með skráð skattkort í launamanni.

Ef allir reitir sem sýnilegir eru hér að ofan eru hakaðir og smellt á framkvæma er viðkomandi starfsmaður skráður Hættur og óvirkur í starfsmannaspjaldi, fastir og hlutf. liðir eru orðnir óvirkir auk þess sem skattkort fær lokadagsetningu í reitinn Skattkort út.

Dæmi um virkni fyrir skattkort:

Ef einungis er sett dagsetning í Dags. hætti mun skattkortið lokast daginn áður, t.d. Dags. hætti er 01.05.2021 - þá fær Skattkort út gildið 30.04.2021. Ef einnig er sett dagsetning í Dags. launalok fær Skattkort út daginn þar á undan, dæmi - Starfsmaður er skráður með 01.07.2021 í Dags. launalok, þá fær Skattkort út dagsetninguna 30.06.2021.

Einnig er hægt að eiga handvirkt við reitinn Skattkort út ef reiturinn á að fá aðra dagsetningu en kerfið setur sjálfkrafa.

Laun

 

STRY0028254

Laun - Starfsmaður

Gerðar hafa verið aðlaganir á virkni sem gefin var út í apríl-útgáfu varðandi meldingu sem birt er ef ósamræmi er á milli starfs og aðalstarfs starfsmanna.

Hún birtist nú ekki vegna launamanns sem ekki er skráður í starf og athugasemdin er heldur ekki birt vegna þeirra starfsmanna sem eru með eitt eða fleiri störf og eru hættir eða í leyfi í öllum störfunum.

Laun

Til að fá aðgang að þessari virkni þarf notandi að vera með hlutverkið Laun (F)

STRY0027103

Kerfisumsjón - Vinnslur - Innri starfsferlar - Endurbyggja gögn fyrir innri starfsferla

Nú birtist rétt starfsheiti á launaseðli á gefnum tíma eftir að vinnslan Endurbyggja gögn fyrir innri starfsferla er keyrð.

Dæmi: starfsmaður hafði starfsheitið Fulltrúi í janúar 2021 en í febrúar 2021 fær hann starfsheitið Sviðsstjóri - eftir að vinnslan er keyrð sýnir hvor launaseðill rétt starfsheiti.

Laun

Eininguna sys2190 þarf til að endurbyggja innri starfsferla

 

STRY0028205

Laun - Samþykktarferill launa

Aðgangsvilla í verkborði hefur verið lagfærð

 

 

STRY0028098

Laun - Samþykktarferill launa

Lagfæring á tölvupóstsendingum úr samþykktarferli, einungis fara póstar út vegna þeirra deilda sem hafa ekki verið samþykktar

 

 

STRY0027528

 

Signet - rafrænar undirritanir

Skjöl í Signet sýna nú alltaf nafn þess sem bjó skjalið til í svæðinu "Breytt af" í skjalaskáp en ekki nafn þess sem sótti skjalið síðast í Signet

Rafrænar undirritanir

 

STRY0026584

Stjórnun og Fræðsla

Yfirlit, t.d. þekkingaryfirlit og eyðublaðayfirlit

Aðlaganir hafa verið gerðar varðandi löng nöfn í yfirlitum. Ef heitið er langt er það stytt í haus yfirlitsins en hægt er að sjá allt nafnið með því að fara með músinni yfir nafnið

Stjórnun

Fræðsla